Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

ZZZZZZZZZZZ

Veit ekki, ég hef bara alls enga trú á því eins og allflestir landsmenn að þessir tveir flokkar geti náð saman, eins og ég hef komið inn á áður þá er himinn og haf í ESB máli flokkanna, og ef það næst að mynda stjórn, þá mun annar flokkurinn svíkja kjósendur, verður fróðlegt að sjá hvor það verður.

Áfram Ísland.


mbl.is Viðræðum haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tómt bull og algjör vitleysa.

Þetta er algjör vitleysa að vera halda því fram að þessi 2% aukning á fylgi við Samfylkinguna hafi eitthvað með ESB að gera, ESB sinnar vilja trúa því að svo sé, þetta er bara alger misskilningur, það er ekki meirihluti fyrir ESB aðild, og miðað við það sem ansi margir þingmenn VG segja, þá verður ekkert af ESB að sinni, ef svo er, þá svíkja þeir ansi marga kjósendur.

Áfram Ísland.


mbl.is Skylt að sækja um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin ESB aðild?

Ef þessir tveir eiga að sjá um ESB umræðuna, þá verður ekkert úr ESB aðild, Össur er náttúrulega ESB sinni, en Ögmundur sagði um helgina að ESB umræðan er algjört glapræði á þessum tímapunkti, þetta gæti orðið nokkuð athyglisvert, en það er alveg ljóst að annar hvor flokkurinn mun svíkja kjósendur, það er vitað að bændur kusu VG í þeirri trú að ekkert ESB rugl hengi á snúrunni.

Og einnig skil ég ekki af hverju VG skuli ekki fara fram á Forsætisráðherraembættið, í ljósi góðs sigurs í kosningunum, þar sem VG unnu besta sigurinn.

Áfram Ísland.


mbl.is Viðræður hefjast klukkan fimm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur að svíkja kjósendur VG??

Ég er nú ansi hræddur um að margir kjósendur VG verði nú ekki sáttir með þá niðurstöðu ef Steingrímur ákveður að fara í ESB viðræður, er það ekki þvert á gegn stefnu flokksins, veit ekki betur en að Atli gísla og Ögmundur hafi báðir líst því yfir að það er vondur tími að vera að spá í þessu rugli núna, Samfylkingin stefnulausi flokkurinn hugsar ekkert um heimilin í landinu, það bara kemst eitt að, ESB og svo halda þau að þau hafi unnið á vegna ESB, þvílíkt bull og vitleysa.

 Ég er nokkuð viss um að meirihluti þeirra sem kusu þetta evrurugl, hafi ekki neina hugmynd hvað felst í umsókn, Samfylkingin veit það ekki heldur, bara sækja um aðild.


mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt bull!!

Þetta eru ekki verðlaun fyrir leikmann ársins, heldur verðlaun fyrir góða ferilsskrá, að fá útnenfingu sem leikmaður ársins er tómt bull, væri svipað og Rasheed Wallace fengi útnefndan sem leikmaður ársins í NBA, algjör vitleysa.

Ryan Giggs er ekki leikmaður ársins, leikmaður sem er meira og minna búinn að sitja á bekknum og þegar hann kemur inná, þá rífur hann kjaft, algjört bull.


mbl.is Giggs leikmaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna með ESB á heilanum.

Ég tók eftir í þessum þætti með leiðtogunum í kvöld, og tók eftir því alveg sama hvað leiðtogarnir reyndu að skýra út hvað hefði betur mátt fara í kosningabaráttunni, þá tönglaðist Jóhanna Vigdís endalaust á sama hlutnum, ESB aftur og aftur, það var eins að hagur heimila skipti engu máli, það sem skiptir máli fyrir okkur öll er hvernig við náum að vinna okkur upp úr þessum vandræðum, og ESB aðild er ekki lausnin, það er öruggt.
mbl.is Elítan vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki enn!!

Allt voða gott, allir glaðir voða gaman athyglissýkin alveg að fara með liðið, allir að fá sína stóla góð laun og hver á að fá hvaða embætti, og svo verður farið í evrópumálin, og þá mun væntanlega myndast þokubakki yfir borðinu á Hjarðarhaganum, "skjaldborgin heimila hennar Jóhönnu" getur bara beðið á meðan ESB umræðan er númer 1,2 og 3.

Alveg eins og mál númer 1 var að reka Davíð úr SÍ, og mál númer 2 var að loka nektarstöðum, " skjaldborg heimila" getur bara beðið.


mbl.is Stranda ekki á Evrópumálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verða langar viðræður.

Ég tel að vinstri menn eigi eftir að eiga langa vinnustundir að reyna koma þessari stjórn saman, það verður ekki vandræðalaust, Samfylkingin segja að þau unnu stórsigur, Samfylkingin fékk 29,6% atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn beið afhroð og er með 23, 6% atkvæða, fyrirgefið mig, en samkvæmt mínum reikningum munar ekki nema rúmum 6% stigum og hafið líka eitt í huga það verða mjög erfiðir tímar að koma efnahagsmálum á af stað að nýju, nú reynir virkilega á hvað tromp á hendi þessi vinstri öfl hafa, það eru spennandi tímar framundan.


mbl.is Óformlegar stjórnarmyndunarviðræður í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonbrigði Samfylkingar!

Þá eru kosningarnar búnar og Samfylkingin og VG lýsa sigri og Jóhanna er búin að gefa það út að nú er loksins kominn sterkur jafnaðarmannaflokkur, hann fær ágætis kosningu, en ég er nokkuð viss um að Samfylkingarfólk og VG eru ekki eins sátt eins og margir vilja láta uppi, þessi stjórn er með meirihluta en ég bara get ekki séð hvernig þessi stjórn mun geta unnið saman, þegar annar flokkurinn segir að þau muni sækja um ESB, en hinn flokkurinn reynir alltaf að komast hjá því að ræða ESB málin, þessi stjórn er ekki langlíf að mínu mati.
mbl.is Nýtt Alþingi Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kobe Bryant frábær.

Þvílíkur snillingur þessi maður, átti enn einn frábæran leikinn, og skoraði 38 stig, LA Lakers komnir yfir 3-1 og þetta lítur mjög vel út.


mbl.is Dallas þarf einn sigur til viðbótar gegn San Antonio
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband