Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2012

Og hvað????

Hvað er eiginlega að þessu liði þarna....þetta er ekkert flókið í mínum huga...makríllinn er í okkar lögsögu..og okkur ber að veiða sem til þarf...ef þessar þjóðir sem vilja banna allt...og setja okkur stólinn fyrir dyrnar, eigum við að fara okkar eigin leiðir...látum ekki kúga okkur!!
mbl.is Vilja refsiaðgerðir gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert..

Þetta eru athyglisverðar tölur...og ánægjulegar í ljósi þess að núverandi stjórnarflokkar ná rétt um 20%...þjóðin er svo fyrir löngu búinn að fá nóg...Hægri Grænir eru með 2,3% fylgi....sem er ekki mikið...en mun sennilega lagast þegar stefnuskráin er kominn í loftið..án efa besta stefnuskrá eins stjórnmálaflokks á Íslandi!!


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn fengi 43%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskoði...nýjasta orðið......

Er endurskoði orðið nýjasta orðið hjá VG-liðum....Steingrímur talar um að stefnt er að...markvisst....unnið er að...allt svona merkingarlaus orð...eða m.ö.o....pappakassa orð..frá pappkössum.

Vilji þjóðarinnar er að þetta verði dregið til baka...væntanlega vilja sumir fá að sjá hvað er í pakkanum..imagesCAL5KLZ4...en ég er nokkuð viss að það verður ekkert gefið...við munum alltaf þurfa borga háar fjárhæðir til þessa styrkjabandalags....ég segi NEI takk við ESB!!

Notum frekar þessa milljarða sem er verið að henda í þessa vitleysu...í að byggja Ísland upp...


mbl.is Endurskoði aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og stjórnvöld sitja hjá???????

Og hvað ætla stjórnvöld að gera....ætlar Steingrímur að sitja undir þessu einnig...á að fórna öllu eingöngu til þess að koma ekki Sjálfstæðisflokknum að..ef svo er þá er þessi styrkjaaðlögun dýru verði keypt.

Ég ætla bara að treysta Ögmundi fyrir því og Jóni Bjarnasyni og fleirum VG-liðum...að rifta þessu aðlögunarferli undir eins...Samfylkingin ætlar að koma sjálfstæðinu frá okkur í hendur styrkjabandalagsins.

Hættum þessu bulli...gerum okkar eigin samninga við önnur ríki....gerum fríverslunarsamninga við aðrar þjóðir...við erum með EES samninginn sem er fínn...látum það duga...en drögum þessa vitleysu til baka..þetta er bull!!


mbl.is ESB vill aðild að Icesave málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin klofin....hún vill ekki..

Þetta er alveg magnað..ÖJ segir að skiptar skoðanir er um það innan þingflokks VG hversu langt aðildarviðræðurnar eigi að ganga....nú var það þannig í stefnuskrá VG..að innganga inn í styrkjabandalagið ESB skyldi ekki verða....og þeir fengu góða kosningu út af þeirri stefnu..en núna þegar 1 ár er í kosningar hefur heldur fjarað úr fylginu...fylgið mælist í kringum 11%...sem er í meira mæli.

Þetta segir Ögmundur réttilega í pistli rétt fyrir jól...

"Ef þjóðin segir nei, þá getum við hætt að senda flugvélafarma af starfsfólki fyrir gríðarlega fjármuni til að fletta pappír suður í Brussel og notað tímann og peningana sem sparast til uppbyggilegra verka. Okkur liggur á að komast út úr þessu endemis rugli"

Með réttu væri best að draga þetta til baka....evrusinnar hafa gert ótal skoðanakannair hjá Gallup sem hafa verið þeim í óhag, og það kemur ekki fyrir almenningssjónir...skiljanlega fyrir það fólk.

En þjóðin vill ekkert í þetta styrkjabandalag að gera...og vill fríverslunarsamninga frekar við önnur ríki!!


mbl.is Getum ekki beðið eftir ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðlindir ber að nýta...

Hér á Íslandi er rætt ofbóðslega mikið um hve ríkt við erum að alls kyns auðlindum, en hverju þjónar það ef þær eru ekki nýttar...nýtum auðlindir Íslands, og styrkjum Íslenskt samfélag í leiðinni..með auðlinda gjaldi til framtíðar....
mbl.is Vilja bjóða út nýtingaréttinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningsmenn eru ekki vandinn???

Sýna þolinmæði...það er ekki við okkur stuðningsmenn að sakast...leikmenn verða bara gjöra svo vel að sparka í rassgatið á sér og fara að spila eins og þeir fá borgað fyrir....stuðningsmennirnir eru ekki vandinn!!

Leikmenn inn á vellinum eru bara ekki að gera nægilega góða hluti...einfalt.


mbl.is Gerrard: Bið um að sýna okkur þolinmæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er engin sátt með þetta frumvarp..

Hvernig getur ríkjandi stjórn enn og aftur farið gegn þjóðarvilja sí og æ..þessari stjórn virðist gera best í því að gera allt öfugt við það sem þjóðin vill...sbr skjaldborgin í kringum bankanna..ekki heimillin...sbr...glæsilega niðurstöðu hjá Steingrími J..svokallaði "Svavars samningur"...þar sem þjóðin kollfelldi ekki bara einu sinni..heldur tvisvar..og svo núna..þar sem ekki einn fyrir utan ríkjandi stjórn hefur talið þetta frumvarp gera vel fyrir þjóðina....þessi stjórn á skilið að vera kollfelld í næstu kosningum eftir 1 ár!!

 


mbl.is Vilja að frumvörpin verði lögð til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri menn að koma höggi á forsetann....

Það kæmi mér ekkert á óvart...að hér eru öfl á vinstri vængnum að koma höggi á forseta Íslands..forsetanum sem stendur með okkur Íslendingum, það er honum að þakka að Icesave skuli ekki vera baggi á þjóðinni....vinstri öflin hér á landi...ætluðu sér að láta meiri og meiri birgðar á herðar barna okkar....þetta átti allt að gera svo ESB inngangan gæti verið greiðfær....stöndum vörð um forsetann Ólaf Ragnar...og pössum okkur á núverandi vinstri öflum....sem svífast einskis að tala Ísland niður með öllu...þetta pakk er landráðapakk....og ber að varast!!
mbl.is „Hlýtur að vera misskilningur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að víkja besta samningsmanni Íslands.....

Að víkja besta samningsmanni Íslands út úr samningnefnd Íslands...segir allt sem segja þarf um sitjandi stjórnvöld...Tómas Heiðar talaði máli Íslands..og var mjög harður í samningaviðræðum um makríldeiluna...þessi ríkisstjórn talar máli ESB sinna..og vill ekki Íslandi neitt gott.

Það sannar bara síðasti Icesave samningur...þar sem stjórnmálastéttin var með allt með sér...fjölmiðla..embættisfólk..fræðinga frá Háskóla Íslands...en þökk sé forseta okkar Ólafi Ragnar..þá vísaði hann þeirri deilu til þjóðar...og þannig fáum við bestu niðurstöðuna...að þjóðin kjósi.

Að víkja einum besta samningsmanni Íslands...er hneisa....en þessi stjórn situr eingöngu vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn má ekki komast að....þessi stjórn mun fá dóm sinn eftir eftir 1 ár...eins og staðan er í dag er þessi stjórn með 28%.


mbl.is Gæti tafið ESB-viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband