Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Gott stig!

Ég er sáttur með þetta stig, þetta stig gerir það að verkum að við erum komnir 9 stigum á undan næsta liði, og að vera búinn að tryggja nánast þáttöku í undankeppni meistaradeildar næsta tímabil fyrir leikinn mikilvæga á móti Chelsea á miðvikudaginn er frábært.

 Nú er bara að spýta í lófanna og ná góðum sigri á Brúnni í meistaradeildinni, koma svo!!


mbl.is Æsispennandi fallbarátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaðir!!

Svo koma þeir núna og segja að krónan eigi eftir að styrkjast, þessum mönnum er ekki viðbjargandi, annars gott mál og eins og ég var búinn að segja að krónan var orðinn að mínu mati of veik, við búum við gott hagkerfi og þessi tíðindi koma mér ekkert á óvart.
mbl.is Bear Stearns spáir 8% gengishækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram LA Lakers.

Glæsilegt hjá mínum mönnum að enda á toppnum, að fá Gasol til liðs við okkur leikmann sem var búinn að vera á mínum óskalista í mörg ár, var náttúrulega bara snilld.

En varðandi rimmuna við Denver, þá eru þetta leikir sem við eigum að taka, verður fróðlegt að fylgjast með rimmu Spurs v Suns, Duncan v Shaq gæti orðið spennandi einvígi, bara eins og allar rimmurnar í vestrinu.

 

Koma svo Lakers.


mbl.is NBA: Boston endaði deildarkeppnina með sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja rétt frá!

Við skulum fara með rétt mál hérna, ekki vera með eitthvað púður út í loftið, ok segjum svo að íbúðaverð lækki um 30% segjum bara allt fari á versta veg, þá er fólkið sem fjárfesti í þessum eignum ekkert búið að tapa þessum peningum, þetta er niðursveifla sem gengur yfir á einhverjum tíma.

Að vera segja svona hluti finnst mér vera afskaplega óábyrgt og þið blaðamenn megið vanda orðavalið aðeins betur fólkið sem er að kaupa sér þak yfir höfuðið er að stofna sína fjölskyldu á ekkert að lesa svona óábyrgða frétt.

Þetta er kannski niðursveifla en með tíð og tíma mun þetta jafna sig og vonandi að fjölskyldum þessa lands eigi bjarta framtíð fyrir höndum og vonandi að sem flestir fái þak yfir höfuðið.


mbl.is Úr 5 milljónum í plús í 5,5 milljónir í mínus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið.

Hvað er að þessari bresku pressu, þeir nærast á þessu neikvæða, spurning hvort Kaupþing og Landsbankinn geti ekki höfðað mál gegn þessum tímaritum og svo eru menn gersamlega með buxurnar niður á hæla þegar markaðurinn rétti aðeins úr kútnum og koma með afsökunar beiðni hægri og vinstri, ég trúi því ekki að Kaupþing og LÍ láti staðar numið og fari með málið lengra.
mbl.is Leiðrétting birt í Sunday Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært.

Enn og aftur gleðitíðindi, vonandi að það verði farið í þetta með fullum þunga og að þetta eigi eftir að glæða atvinnulífið fyrir norðan, eins og er búið að gera fyrir austan, spurning hvað vestfirðingar fái, en vonandi að menn fari í þetta sem fyrst, frábært.Smile
mbl.is Undirbúningur álvers á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband