Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013

Verðtryggingin ekki á dagskrá Sjálfstæðismanna!!

Það á greinilega ekki að taka á verðtryggingunni hjá Sjálfstæðismönnum miðað við þessa yfirlýsingu...það á að halda þessu óbreyttu...engar breytingar.

Það er ekki nóg að álykta á landsfundi...ef svo þingmenn fari ekki eftir þeirri ályktun í þinginu...það virðist vera þannig að það er gott að láta kjósa sig...svo getur "skóflupakkið" haldið bara áfram að moka...já svona er Ísland í dag.


mbl.is Króna í höftum ekki framtíðargjaldmiðill
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósum flokka gegn ESB aðild!!

Kjósum flokka sem eru gegn aðild að styrkjabandalaginu...Framsókn er án efa einn sá flokka sem hefur gefið það skýrt út að andstaðan við ESB er skýr...kjósum þá flokka sem vilja draga umsóknina til baka.
mbl.is Rúmlega 2,4 milljarðar í mótframlag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað til í þessu!!

Það er nú eitthvað til í þessu hjá Ástþór..allavega þau sem sögðu já við Icesave3..ættu að hugsa sinn gang gaumgæfilega...hvernig eigum við almenningur að geta treyst því fólki sem gersamlega fór gegn vilja þjóðarinnar í þeirri lokaniðurstöðu.

Þetta á ekki bara við stjórnarliða..heldur einnig stjórnarandstæðinga...aðeins Framsóknarflokkurinn stóð heill í þessu máli...og þakka ég honum fyrir það

Kannski þetta sé orðið eina aflið sem vill virkilega draga aðildarumsókn Íslands í ESB til baka.

Ástþór hefur lög að mæla...spurt er...þegar þeir 44 þingmenn sögðu já...voru þeir að huga að hagsmunum Íslands...ég vil ekki meina það...þess vegna geri ég þá kröfu að þeir sem sögðu já...ættu að hugsa sinn gang...ég vil eingöngu fólk sem hugar að hagsmunum Íslands.


mbl.is Vilja að þingmenn segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona mann þurfum við á þing.

Svona fólk þurfum við á þing...fólk sem er með hugmyndir...og fólk hlustar...vonandi að hann sökkvi ekki innan um spillingapésana á þinginu...það þarf að hreinsa út úr þinghúsinu.
mbl.is Eftir Icesave er komið að heimilunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er einmitt það, sem við eigum að gera!!

Þetta er alrangt hjá þessum ráðherra...við eigum einmitt að leita eftir sökudólgum...hverja ber að varast..hverjir það voru sem vildu ekki verja hagsmuni Íslands...

Hér eru einmitt þeir 44 sem vildu samþykkja Icesave3..og eru þar af leiðandi sökudólgar...og mitt mat þeir sem sögðu já ættu að fara gera eitthvað annað en að vinna á þingi....það er alveg ljóst að það fólk er ekki að vinna að hagsmunum Íslands.

Sökudólgarnir.


mbl.is Eigum ekki að leita sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur sagði já við borgun Icesave..

Hér er listi þeirra sem sögðu já og nei....
mbl.is „Stórkostlegur sigur fyrir okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru gleðitíðindi...

Þetta eru gleðitíðindi fyrir Íslendinga...og lýðræðið í landinu...og ég mæli með því að þeir sem harðast fóru í því að við ættum að samþykkja þessa ólögvarða kröfu á hendur okkur...ættu ekki að koma nálægt hagsmunum Íslands aftur...þá átti að koma 100 milljörðum í auknum byrðum á skattborgara landsins...

Steingrímur J..og þessi tæra vinstri stjórn ætti ekki að koma nálægt hagsmunum Íslands aftur...mitt mat...

Hér er listi yfir þá sem sögðu já og nei á þinginu...hafa þetta hugfast fyrir næstu kosningar.

Þetta sagði fræðimanna samfélagsfólkið á Íslandi...og það fólk sem tilheyrði stjórnvöldum.

Hér er af bloggi Björn Vals..þingmanns VG.

Fyrst Þórólfur Matthíasson....

...svo Gylfi Magnússon sem var ráðherra Samfylkingar....

...svo ráðherrar þessarar tæru vinstri stjórnar...

..svo að lokum...


mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESA niðurstaða...Íslandi í vil!!

Ísland var rétt í þessu að "vinna" Icesave málið fyrir ESA dómi...og það verður fróðlegt að heyra hvað spunameistarar ríkisstjórnar munu segja eftir þessa niðurstöðu...ég vil óska öllu til hamingju með þessa niðurstöðu, og þakkir til allra sem studdu við lýðræðið í landinu, með því að segja nei tvisvar í kosningu til Icesave....frábær tíðindi.

Steingrímur J var einn sá ráðherra sem harðast fór fram að við ættum að klára þetta ferli sem Icesave er...og ætlaðist til þess að þjóðin tæki á sig hundruði milljarða í auknar byrðar.

Þetta sagði Þórólfur Matthíasson úr fræðimannasamfélaginu, ef við skyldum samþykkja Icesave.

Svo Gylfi Magnússon um niðurstöðu Icesave.....


Hvar er RUV eða Stöð2??

Hvar eru sjónvarpsstöðvarnar núna...afhverju er ekki hægt að sýna þetta í beinni útsendingu...eða hluta af því...svo hluta í einhverjum þáttum....þetta er efni sem mörgum finnst alveg örugglega gaman að!
mbl.is Hanna og Nikita slógu í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frystum útgjöld fjárlaga!

Ég er ekki sáttur með það að við skulum endalaust vera með halla á fjárlögum..við verðum að fara að taka til í þessum rekstri þessa félags sem Ísland er.

Það er margt gott sem hið opinbera gerir...en margt sem er sukkað með...það er bara þannig að það mætti fara betur með almennings fé..og hvað skal gert.

Ég er með þá hugmynd...sem er framkvæmaleg..að það er að frysta útgjöld fjárlaga...með þeirri aðgerð...munum við ná tökum á útgjöldum fjárlaga...vegna þess að landsframleiðsla er og mun aukast...ef við fystum útgjöld fjárlaga...allir halda sinni vinnu hjá hinu opinbera..engar breytingar...bara höldum okkar striki...þá þurfum við ekki vera ýta vandanum til barnanna okkar...við eigum að taka á þessum málum núna...ekki ýta þessu áfram.

Ég skora á þingmenn og embættismenn að fara þessa leið...allir taki sig saman...og um leið gerum samfélagið betra..með betri rekstri...og að auki ef náum á endanum á hallanum...getum við lækkað skatta sem mun koma sér vel fyrir alla...með lækkun skatta á alla landsmenn.

Eins og bloggið sem ég skrifaði um daginn sem varðar útgjöld ríkissins...bara á tveimur árum hefðum við sparað okkur tugi milljarða...þetta er hugmynd sem að mínu viti ætti að skoða..og við Íslendingar verðum að fara reka þetta eins og fyrirtæki.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband