Óhæf sem ráðherra..

Að vera með svona vondan ráðherra, er ekki til að auka bjartsýni á framtíð landsins...ég tel að þessi kona sé ekki starfi sínu vaxin, og ber að víkja undir eins, það sem hefði þurft að gera, er að koma kjötinu í sölu, og það er ekkert mál, ef ráðherran væri góður.

Henni ber að segja af sér undir eins.


mbl.is Kennir Þorgerði um verðlækkunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uppskerubrestir, flóð, fellibyljir og peningafalsandi fjármálakerfi heimsins mun skapa matarskort og hamfarir sem ekki hefur áður sést.

Það er brjálæði að draga saman matarframleiðslu, og algjörlega óverjandi ábyrgðarleysi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2017 kl. 15:17

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún hefur ekki vit til að segja af sér, frekar núna en áður.  Núna sýnir þetta "Viðriðnislið" Viðreisnarlið) sitt rétta andlit þetta er versta hryðjuverkalið og virðist hafa það eina markmið að beita hryðjuverkum á undirstöðuatvinnuvegi landsins og véla okkur inn í ESB og taka upp evruna.  SEM SAGT ÞETTA LIÐ ER EKKERT ANNAÐ EN "LAUMUKRATAR"......

Jóhann Elíasson, 6.9.2017 kl. 15:35

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í gegnum tíðina hafa kratar viljað leggja stein í götu landbúnaðarins (ÞGK er krati í dulbúningi). Ég tek undir með Önnu Sigríði, svo virðist sem stjórnvöld vilji skapa matarskort í landinu. Með því að flytja óhindrað inn kjöt og önnur matvæli er verið að vega að íslenskri matvælaframleiðslu. Við þurfum einmitt að standa vörð um innlenda framleiðslu á matvælum til lands og sjávar.

Það ætti að gera bændum kleift að sjá sjálfa um slátrun á búpeningi og selja beint til neitenda, sleppa milliliðum, það kæmi betur út fyrir neitendur og bændur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 6.9.2017 kl. 16:43

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Að sjálfsögðu er hún óhæf sem ráðherra eins og reyndar flestir ,en formaður  sauðfjárbænda er nú reyndar líka í ruglinu  eins og allir á þeim bænum.

Jósef Smári Ásmundsson, 6.9.2017 kl. 17:20

5 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sauðfjárrækt hefur alltaf verið til vandræða. Fyrir áratugum, hafði SÍS mest út úr því að halda úti fullum frystigeymslum af kindakjöti. Voru samt á matvælasýningum og gáfu eðlilega smakk. Þegar áhugasamur kaupandi vildi kaupa, var viðkvæðið, very difficult very difficult. Vandamálið er og hefur alltaf verið  milliliðirnir. Að kenna ráðherra um ástandið í dag(liggur reyndar vel við höggi), er fásinna miðað við óstjórnina áratugina á undan, alls staðar, því bændur hafa minnst um þeta að segja, nema segja já eða nei. Landbúnaðinn þarf að endurmeta í heild sinni fullkomlega upp á nýtt. Hann er rekin á röngum grundvelli, grundvelli milliliða, sem upphaflega átti að vera sameign bænda, en er nú svo fjarri því! 

Jónas Ómar Snorrason, 7.9.2017 kl. 09:16

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Við hverju bjuggust kjósendur við öðru en einhverju rugli frá Kúlulána Drottinguni?

Þetta er sú sama sem kom á hinum illræmda RÚV nefskatti með frekju og ofstæki og nú ættlar hún að eyðileggja matarkörfu Íslands, auðvitað með frekju og ofstæki.

Þessi sama heldur því fram að borgarstjóri Reykjavíkur sé algjör öðlingur og stjórni Reykjavíkurborg með afbrigðum. Svo sagði hún í viðtali á Útvarp Sögu.

Bara kjósa svona fólk aftur og aftur, en ekki að búast við einhveju öðru frá þeim en frekju, ofstæki og gjöreyðileggingu á því sem það kemur nálægt.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 7.9.2017 kl. 21:30

7 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Mr. Johann Houston, hversu vitlaus sem ákvörðun ÞKG er, þá er það bara örlítið snjókorn á top vitleysunar, sem viðgengist hefur síðustu áratugina í landbúnaði. Ekki ólíkt sjávarútvegi, þá er landbúnaður rekin á grundvelli sérhagsmuna, meðan svo er, þá verður aldrei neitt af viti framkvæmt. Þú veist þetta fullkomlega Jóhann kristinsson, en fattarinn er kannski ekki alveg að virka, sökum ást þinnar á XD/XB FC.

Jónas Ómar Snorrason, 8.9.2017 kl. 10:03

8 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Jónas Ómar,

Að sjálfsögðu hugsa bændur um sinn hag, annað en kratar gera er það ekki, eða hvað?  Vandi bændastéttarinnar og neytenda eru milliliðirnir, þér taka of mikið til sín. Ég tel að það væri farssælast fyrir bændur og neytendur að gera bændum kleift að selja sjálfir beint til neytenda. En trúlega eru hagsmunir milliliðanna of miklir til þess að svo megi verða og því er betra að fórna bændastéttinni og matvælaörygginu, er það ekki.

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.9.2017 kl. 11:40

9 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ást mín samkvæmt Jónasi á X-D og X-B er svo mikil að ég hef aldrei kosið þessa flokka og ekki bara þessa flokka heldur alla hina. Það er skrýtin ást, eða hvað?

En ef ást mín á X-D hafi verið svona mikil, þá man ég ekki betur en að Kúlulána Drottningin hafi verið í X-D þegar hún kom hinum illræmda RÚV nefskatti í gegnum þingið.

Nei Jónas minn ég hef enga ást til einhverra stjórnmálaflokka og þegar gert er vel að mínum dómi þá hef ég látið mína ánægju koma fram, en þegar ekki er gert vel þá læt ég skína í mína óánægju.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 8.9.2017 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband