Betur má ef duga skal!!

Hefði ekki mátt taka aðeins meira á niðurskurðarhnífnum og skera launakostnað hjá ríkinu..sem er allt of hár..hann er um 20% af rekstrargjöldum eða um 120 milljarðar..svo er verið að tala um að vextirnir af Iceslave séu háir..sem nema um 35 milljörðum á ári..væri ekki nær að skera niður um 20 milljarða í launakostnaði hjá ríkinu..ríkið á ekki að vera sá aðili á markaði sem hæst ber launin...það er öfug þróun...sem er í gangi núna.Bandit
mbl.is Steingrímur: Vel sloppið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Teitur Haraldsson

Ég er nokkuð viss um að þetta er al rangt hjá þér. Það er ekkert hægt að fara fram á frekari launalækkun hjá hinu opinbera en á almennum markaði.

Þar að auki hefði það bara frekar áhrif til aukningar á kreppunni. Kaupmáttur minkar hjá starfsmönnum stærsta atvinnurekanda á íslandi og það hefur bein áhrif á allt annað.

Mér finnst þessi niðurskurður sem orðin er og að ég tali ekki um skatta hækkanir vera allt of miklar.

Það er mun ódýrara að keyra ríkið í halla og taka lán en að láta alla þjóðina keyra sig í tapi, það endar með ótrúlega dýrum gjaldþrotum og mjög dýrum lánum. Ríkið er að fá ódýrari lán en við og það verður greinilega ekki ríkið sem framkvæmir og skapar störf til að koma okkur út úr þessu, það verðum við sem gerum það.

Teitur Haraldsson, 16.12.2009 kl. 00:12

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Er bara alls ekki sammála..ef einkageirinn tekur á sig lækkanir...af hverju getur ríkið þá ekki gert það einnig..ég mæli með flötum 20% lækkun á laun yfir 400.000..undir 400.000 lækka ekkert.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 16.12.2009 kl. 00:15

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Og annað..hvað er rangt hjá mér??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 16.12.2009 kl. 00:16

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Þið áttið ykkur ekki á málinu. Ríkið og starfsmenn þess eru búnir að eyða þessum peningum en sækja sér nú stimpil um að eyðslan hafi verið lögleg. Ergo:

fjáraukalög sem er auðvitað stjórnarskárbrot, en hverjum hjá ríkinu er ekki sama ??? 

Einar Guðjónsson, 16.12.2009 kl. 00:29

5 Smámynd: Teitur Haraldsson

Ægir: þetta var auðvita "al rangt hjá mér" að setja þetta. Ég reyni að bjarga mér og segja að það sé "al rangt" að ég sé samála þér :) 

Nema ég er sammála þér, laun yfir 400.000kr. ég er bara hræddur um að það séu mjög fáir með þau laun.

Einar: Hvað meinarðu? Eru þetta ekki komandi fjárlög?

Teitur Haraldsson, 16.12.2009 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband