Væri ekki nær að flöt lækkun launa um 15%!!

Væri ekki nær að lækka laun allra ríkisstarfsmanna og þingmanna og ráðherra einnig ( fólkið sem olli skaðanum) taki á sig launalækkun um 15% en ekki að hengja bakara fyrir smið...þeir sem ullu skaðanum "stjórnvöld" eiga að bera höfuðábyrgð á sínum gjörðum, en ekki koma þessu á fólk sem á enga sök.
mbl.is Starfsfólk óttast uppsagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu að meina að allir ríkisstarfsmenn taki á sig 15% launalækkun?? Skil ég þig rétt??

Árni Pétur (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:11

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Jebb..við þurfum niðurskurð..ekki hækkun skatta sem fer beint í lánin okkar..en ríkisstarfsmenn missa laun, það er ljóst, besta lausnin að mínu viti.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 17:15

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ertu að segja að ríkisstarfsmenn í þessu tilviki á LSH eigi einhverja sök á því hvernig komið er? Það má skilja færsluna þannig. En nei, ég næstum að snúa út úr.

Finnur Bárðarson, 4.9.2009 kl. 17:19

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Nei Finnur þú ert ekki að snúa út úr..en þetta góða fólk sem vinnur á LSH sem á allt gott skilið, hefur ekkert til saka unnið eins og fleiri ríkisstarfsmenn á mörgum stöðum, á ekki skilið uppsögn út af því að stjórnvöld sváfu/sofa á verðinum...en fólkið með minni hugmynd héldi allavega vinnunni, en lækkaði launin..þá spyr ég hvort er betra??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 17:23

5 identicon

15% lækkun er ekki flöt lækkun heldur línuleg lækkun með "flatan part" upp á 0 kr.

Björgvin (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:26

6 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Stjórnvöld ætla sér ekkert að kenna sér um...framkvæmdavaldið hefur völdin og sýna klærnar þegar þeim sýnist, heldur fólk virkilega að þau fari að skera niður hjá sér "ELÍTUNNI" kokteilboðin hhmmmmmm

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 17:30

7 identicon

Já fólkið á LSH er gott eftir að Einar Karl Haraldsson hætti

ráðinn sem verktaki í sumar til að undirbúa starf sem hann átti að taka við 1. sept -verktaki svo hann gæti haldið biðlaununum úr Iðanaðrráðuneytinu
En svo fór hann í forsætiráðuneytið  fyrir nokkrum dögum síðan
það þarf sjálfsagt að reka nokkra ræstitækna til að hafa efni á svona flokksgæðingabruðli

Grímur (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:30

8 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Þetta er það sem ég er að meina Grímur..það væri hægt að skera niður umtlasvert hjá ríkinu..hugsið ykkur ríkið (við) erum að borga til stjórnmálaflokka 2 milljónir á DAG!!!!!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 17:33

9 identicon

Semsagt ómenntaður  starfsmaður á leikskóla eða starfsmaður hjá hreinsunardeild  á að taka á sig 15 pr skerðingu??

Semsagt skera laun þeirra sem eru með 150þ ??????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????

jonas (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:37

10 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Ég sagði " ríkisstarfsmenn", eru ekki leikskólar á valdi sveitarfélaga?

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 17:39

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Náði punktinum hjá þér Ægir. Hins vegar er himinn og haf milli þeirra sem t.d. vinna á LSH eða sitja í ráðuneytum, þar eru skrifstofufólk með hátt í milljón á mánuði. Sem eru of há laun.

Finnur Bárðarson, 4.9.2009 kl. 17:50

12 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Einmitt, þetta er rándýrt, en alltaf lendir það fólk í þessu sem á það alls ekki skilið..ég bara spyr hvar er réttlætið??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 18:00

13 identicon

Hvernig væri að forgangsraða? Við erum með fullt af hlutum sem ekki eru NAUÐSYNLEGIR. Má þar nefna forseta Íslands, algjörlega tilgangslaust embætti sem kostar okkur mikið af peningum. Byrjum á að leggja það niður. Listamannalaun, eigum við eitthvað að ræða það eða??? Hvort skiptir meira máli, heilbrigðiskerfið eða listin? Síðan þurfum við bara að fara í gegnum þetta skref fyrir skref.

Auðbjörg (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 18:53

14 identicon

Sleppa 15% launalækkun. Hækka skatta. Þú þarft á Landspítalanum að halda og fólkið sem vinnur mikilvægustu störfin þar fær of lítið borgað nú þegar.

Árni Pétur (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 19:11

15 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Forgangsraða er málið..það eru bara svo mörg atriði hjá stjórnvöldum sem er að og mætti laga með smá hugsun...en það er eitthvað sem þessum blessuðum stjórnvöldum er fyrirmunað að gera.

Árni Pétur...ég var ekkert að segja að ég vildi fólkið burt, síður en svo topp fólk, með minni tillögu ef ég má kalla sem svo, þá spörum við á svo mörgum stöðum og mætti spara nokkra milljarðanna að mínu viti.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 4.9.2009 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband