Embættismannakerfið að rústa Íslandi!!!

Enn og aftur fara embættismenn fram með viðbjóð og frekju..ég á þá við þetta kjararáð sem vogaði sér að hækka laun þingmanna, og er búið að skapa þetta ástand sem er um þessar mundir...er ekki hægt að fá fólk sem vinnur í embættismannakerfinu sem er með heila.

Eru þetta eintómir hálfvitar.....


mbl.is Kornið sem fyllti mælinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Góður punktur hjá þér, það hefur flogið að manni að þetta kjararáð hafi bara verið að kasta sprengju til að reyna að spilla Salek-samkomulaginu.

Hrossabrestur, 7.11.2016 kl. 18:48

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ólýðræðislegt að gefa embættismönnum úrslitavald. Þeir eiga að vera ráðgefandi vald, sem gerir tillögur. Niðurstöður kjaradóms ættu að vera í tillöguformi, sem svo er í verkahring alþingis að samþykkja.

Þetta fyrirkomulag er hannað til þess að fría alþingismenn frá ábyrgð í málum er þá varðar. Það orkar að vísu tvímælis að gera alþingismenn dómara í eigin málum, en aðhald almennings ætti að nægja til að halda aftur af sjálfhygli.

Laun alþingismanna eru ekkert of há miðað við niðurstöðuna, en hækkunin sjálf í prósentum er það sem ergir fólk. Hun er ekki í neinum takti við kjarasamninga annarstaðar. Það gleymist þó að í tíð Jóhönnustjórnarinnar voru laun alþingis lækkuð. Þeir hefðu betur byrjað á að leiðrétta þá lækkun og beðið með launahækkunina þar til síðar. 

Það sem er alvarlegra og verðara gagnrýni eru lífeyris og eftirlaunamál embættis og alþingismanna. Þar er aðalsmannafyrirkomulag. Í þeim efnum á ekki að vera neinn munur á Jóni og séra Jóni. 

Það sem er klúður í þessu máli er að ákvörðunarvaldið er sett í hendur embættismanna, sem í grunninn eru enn vanhæfari en þingmenn til ákvarðanatöku vegna hagsmunatengsla. Það setur spillingarfnyk á þetta allt saman.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.11.2016 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband