Enginn lagaheimild...

Þessi texti hérna....

"Tilefnið er sú nýja niðurstaða Bankasýslu Ríkissins, að ekki hafi verið lagaheimild fyrir framsali á eignarhlutum í Íslandsbanka og Arion Banka 2009."

Af hverju er þessum gjörning þá ekki slitið.


mbl.is Ríkissjóður afsalaði sér ábatanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vegna þess að framsalið fór fram síðar, þegar lagaheimild var fyrir því.

Vagn (IP-tala skráð) 6.6.2015 kl. 13:30

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei, framsalið fór fram fyrst, svo var það "lögleitt" eftirá. Lagaheimildin var því ekki til staðar þegar framsalið var gert. Fjárlög geta ekki verið afturvirk og því var þetta lögleysa.

Spurt er hvers vegna þessu er þá ekki rift? Sama mætti spyrja sig að varðandi ólöglegu Landsbankabréfin upp á 300 milljarða í erlendum gjaldmiðlum sem hafa ítrekað kallað á vandræðalegar undanþágur frá fjármagnshöftunum. Ég varpaði þeirri spurningu reyndar til forsætisráðherra á fyrsta opinbera fundinum eftir að hann komst til valda, þar sem umfjöllunarefnið var einmitt snjóhengjan. Ég tók það fram að ég vildi fá skýrt svar, en hann byrjaði auðvitað svarið sitt á því að viðurkenna að ég myndi ekki fá skýrt svar frá honum við þessari spurningu.

Ég hvet þig Ægir og alla aðra til að halda áfram að spyrja þessara spurninga látlaust þar til við fáum skýr svör.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.6.2015 kl. 14:08

3 identicon

Þegar þú kaupir íbúð Ægir, þá semur þú fyrst og undirritar samninga. Þeir samningar eru með fyrirvörum um að þú fáir lán svo kaupin geti átt sér stað. Svipað gerðist með bankana, samið var fyrst og afhending fór síðan fram í desember eftir að fjárlög voru samþykkt. Þetta er hefðbundin, eðlileg og lögleg aðferð í viðskiptum.

Ég var einu sinni að vinna með manni sem taldi rafmagn vera eitt það dularfyllsta í heimi. Hann kvaðst hafa spurt marga sérfræðinga um hvað rafmagn væri og enginn hefði getað útskýrt það fyrir honum. Hann var því sannfærður um að enginn vissi hvað rafmagn væri, það væri eina rökrétta niðurataðan....hann gekk samt ekki svo langt að kalla rafmagn ólöglegt og heimta rannsókn, enda ekki í tísku þá.

Espolin (IP-tala skráð) 6.6.2015 kl. 15:14

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Samningar um íbúðakaup eru ekki fjárlög, augljóslega.

Ég var einu sinni að vinna með manni sem kunni ekki að gera greinarmun þar á milli, en ég ætla ekki að þreyta ykkur með því.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.6.2015 kl. 18:02

5 identicon

Frábært að Guðmundur skuli fatta að samningar um íbúðarkaup séu ekki fjárlög. Hann hefur sjálfsagt hoppað hæð sína við þá tímamóta uppgötvun í hans lífi. Þá er ekki öll von úti að hann fatti það sem ég var að segja, samningar eru ekki afhending.

Espolin (IP-tala skráð) 6.6.2015 kl. 18:40

6 identicon

Þetta er víðtekin venja í opinberri stjórnsýslu (og líka hjá einkafyrirtækjum).

Flestir samningar eru gerðir með fyrirvara um t.d samþykki framkvæmdarstjórnar og að fjármögnun takist.

Nærtækt dæmi er það að ráðherrar semja oft við erlend ríki um alþjóðlega samninga án fyrirfram gefinar heimildar frá þinginu en samningarnir taka aldrei gildi við undirskrift heldur aðeins þegar þingið hefur samþykkt samninginn.

Þetta er gert til þess að festa skilmála samningsins þannig að þeir sem taka ákvörðun um hann hafi tækifæri til að taka efnislega á kjörunum án þess að eiga hættu á því að þau breytist eftir að gengið er að þeim.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 6.6.2015 kl. 23:00

7 identicon

Þetta verður opinberað þegar rannsókn hefur farið fram hjá Stjórnskipunar-og eftilitsnefndinni sem VigdíS Hauksdóttir, þingmaður leiðir, vegna rannsóknar á málum sem varðar Viglund Þorsteinsson, vegna framsals á bönkaunum, þar sem Steingrímur J.Sigfússon og hans ríkistjórn og embættismannakerfið stóð ólögleg að, hafði ekki lagheimild til framsals á bankakerfinu úr LB í NLB.  Neyðarlögin voru sniðgengið og tekið frá FME, það gerði fyrrverandi fjármálaráðherra og hans ráðgjafalið og aðrir embættismenn, þar lék S.J.S.þar algjöran einleik.  Gögn hafa borist að borðum Stjórnskipunar-og eftiltsnefndar, en enn vantar fundargögn, sem eru týnd og tröllum gefið, en embættismenn höfðu misst minnið í viðtali hjá Stjórnskipunar og eftirslitsnefndinni og þeir minntir á skjalavörslu, sem tilheyrir stjórnsýslunni og upplýsingalögum, það er svo einkenilegt að Geir Haarde var dæmdur í Landsdómi vegna þess að hann hafði ekki haldið ríkistjórnarfundi eða haldið fundargerðir, það gerir S.J.S. nákvæmlega það sama,maðurinn sem vakti upp Landsdóm.  Nú fer Víglundur Þorsteinsson, fram á það vi Bjarna Benediktssyni, efnahags- og fjármálaráðherra í opni bréfi að hann sem yfirmaður fjármálaráðuneytis er honum skylt að framfylgja þeirri beiðni þau gögn sem vantar upp á til Stjórnskipunar-og eftiritsnefndarinnar, þegar það er komið í ljós allt ranglætið þá er hægt að rifta þessum gjörningi, Landbankabréfinu, fjárlögum, sem voru ekki til fyrir þessu, fjárlögin eru ekki afturvirk heimild, hann færði kröfuhöfum og vogunarsjóðum-hrægömmum, heimili landmanna á silfurfati og við stæðum ekki Íslendingar í þessum sporum í dag ef farið hefði eftir Neyðarlögunum, sem Geir Haarde setti á, svo keppast stjórnarflokkarnir að hrósa sér fyrir að aflétta fjármagshöftunum í skrefum til marga tuga ára.  

Kolbrún Árnadóttir (IP-tala skráð) 11.6.2015 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband