Og þetta vill ESB skemma fyrir okkur!

Og þótt ótrúlega megi virðast..þá hamast ESB, Norðmenn og Skotar í okkur alveg eins og rjúpan við staur..og fara hamförum í því að við fáum ekki að rækta markaði okkar í rólegheitum...heldur vilja þessi 3 öfl eiga markaðina..og ekki hleypa okkur inn.

Höldum áfram okkar vinnu..og vinnum markaðina á okkar band..þannig munu þessi 3 öfl hætta þessum innantómu hótunum í okkar garð..og vonandi að Íslenskur efnahagur eigi eftir að eflast í þessari grein.


mbl.is Batnandi orðspor íslensks makríls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þetta er álíka paranojufílingur í þér og þjóðhátíðarprumpinu hjá forsætisráðherra. Allir vondir við okkur. Þú náttúrulega gerir þér ekki grein fyrir því að allir eru að verja sitt og reyna að skapa sér góða samningsstöðu í málinu. Það gerum við ekki með því að úthrópa viðsemjendur okkar sem kúgara og ræningjalýð. En þið Evrópuhatarar eruð fastir í aldagömlum torfkofa og kúgunarhugsunarhætti, allir eru vondir við mig, aumingja ég!

Óskar, 26.6.2013 kl. 12:00

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Já sæll....en þetta er bara staðreynd sem ég sagði...þessi 3 öfl sem hafa sótt hart að okkur...og hóta öllu illu...eiga vonandi eftir að éta þetta allt saman oní sig.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2013 kl. 12:53

3 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

ESB er nú ekkert annað en kúgunar og reglubandalag sem við eigum að forðast....

Marteinn Unnar Heiðarsson, 26.6.2013 kl. 12:53

4 Smámynd: Örn Ingólfsson

Já en við skulum gera okkur grein fyrir því þó það komi ESB ekkert við þessar þjóðir sem hóta öllu illu hafa ofveitt makríl í sínum lögsögum en það hefur því miður ekki mátt segja frá því í þeirra heimalöndum, þar er allt þaggað niður um þessa ofveiði þeirra og þess vegna vilja þeir fá meira og halda að við séum að stela frá þeim en þetta er auðlind okkar allra Íslendinga þó svo að aðrir vilji eigna sér auðlindina.

Örn Ingólfsson, 26.6.2013 kl. 13:18

5 identicon

En Norðmenn eru ekki í ESB... ég skil ekki...

Jón (IP-tala skráð) 26.6.2013 kl. 16:43

6 identicon

Já það er undarlegt að makríllinn hefur fjölgað sér svo mikið að hann leitar út fyrir lögsögu þeirra ríkja sem hafa verið að ofveiða hann....

Og hvernig ætlum við að bregðast við ef fleiri fiskar ákveða að gott væri að líta útfyrir landhelgi og aðrar þjóðir fara að okkar fordæmi? Þegar norðmenn fara að moka upp loðnunni sem við höfum hlúð að og skotar krækja sér í milljónir þorska með útrunnin íslensk vegabréf. Og þar sem eignarhaldið miðast við landhelgi geta danir og pólverjar strax hafið aftur veiðar á laxi ættuðum úr aðaldal og leirársveit rétt utan við landhelgi okkar.

Það vantar bara opinbera yfirlýsingu:"Okkur Íslendingum kemur ekkert við hvað aðrir gera utan við landhelgi og öðrum kemur ekkert við hvað við gerum innan við landhelgi. Og við biðjum alla þá afsökunar sem við kölluðum sjóræningja fyrir að veiða á reykjaneshryggnum utan við landhelgi." 

Egill (IP-tala skráð) 26.6.2013 kl. 19:06

7 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Norðmenn já....þeim er nákvæmlega sama um Íslenska hagsmuni...þeir huga eingöngu að sér sjálfum....talandi um frændþjóð...kjaftæði..Norðmenn eru ekki vinir okkar.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2013 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband