Draga þessa umsókn til baka undireins!!!

Stjórnvöldum ber að draga þessa umsókn til baka undireins...þau hafa ekkert umboð til þess að standa í þessu ferli...það er góðs viti og góður gangur að stöðva alla vinnu við þetta rugl.

ESB-sinnar vilja fá atkvæðagreiðslu um það hvort við eigum að halda áfram...afhverju var ekki haldin þjóðaratkvæðagreiðsla þegar sótt var um þetta ferli...gilda ekki sömu lögmál þá...staðan er bara þannig...að það er engin þjóðarvilji til þess að halda þessu áfram..þannig er það bara.

Ísland er mun betur statt fyrir utan þetta styrkjabandalag..en innan þess.

Ég hvet utanríkisráðherra að draga þessa umsókn undir eins til baka...það eitt myndi styrkja hans stöðu sem utanríkisráðherra....ég skora á Gunnar Braga...og Sigmund Davíð...að draga þessa umsókn til baka undir eins.

Áfram Ísland.


mbl.is Ekki skipuð pólitískum fulltrúum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ég held að það sé góðra gjalda vert að keyra þjóðaratkvæði samhliða sveitarstjórnarkosningum að ári og fá þangað til (það sem ekki hefur komið enn) óháða umræðu um kosti og galla sambandsins.

Skoða verður t.d. landbúnað sem fær styrki í ESB en er hér mikið til á okkar kostnað og þá er ekki allt talið þegar við höfum farið út í búð OG greitt beingreiðslur enda verður að reikna líka upp hversu mikið við borgum í innfluttu vöruverði sem keyrt er upp með verndartollum til handa íslensku framleiðslunni. Það er alveg klárt (og næsta mál EES) að styrkirnir eins og þeir eru hér nú og hafa verið eru brot á samningnum.

Skoða þarf hvað EURO kostar og hvað við missum, m.a. af kvóta og sjálfstæði vegna ákvæða PP1 (pact plus one).

M.v. hversu fljótir íslendingar hafa verið að finna leiðir til að fara framhjá reglum og svindla á kerfum held ég að við ættum aðvelt með að mergsjúga ESB langtum umfram það sem að nokkurn órar fyrir nú.

Ekki er sanngjarnt að reikna upp kostnað við krónu (eins og gert er nú) og halda að "etthvað annað" sé frítt.

Óskar Guðmundsson, 11.6.2013 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband