Af hverju lán..en ekki að rífa efnahaginn upp með fyrirtækjum landsins!

Þetta er ekki gott..lán er algert neyðarbrauð..kannski er staða okkar svo slæm að við neyðumst til þess að taka þessi lán..en lán verður að borga (nema útrásarvíkingar)..væri ekki nær að hleypa meiri kraft í fyrirtæki landsins og þannig fá meiri tekjur..og fá fleiri út á vinnumarkaðinn..þannig sköpum við tekjurnar og styrkjum ríkiskassann!
mbl.is Loksins ber stritið árangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sammála þér - þessi þráhyggja SJS er orðin fáránleg

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.4.2010 kl. 17:49

2 identicon

allt þetta strit, allan þennan tíma fyrir 20 milljarða? þetta er komið út í rugl. þetta er ekki upp í nös á ketti. fyrst þetta fé kemur þó þá á það að fara beint í það að skapa einhverja atvinnu, sama hver hún er ekki í neitt annað þetta dugir hvort eð er ekki fyrir vaxtagreiðslu eins mánaðar hjá ríkinu.

Þórarinn (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 17:50

3 Smámynd: Tryggvi Helgason

Það þarf engin lán til þess að gefa bátasjómönnunum frelsi til fiskiveiða á færi, á grunnslóð og inn fjarða.

Það gæfi næstum samstundis auknar tekjur á litlu útgerðarstöðunum í kringum landið, svo og verulega aukningu gjaldeyristekna.

Eftir hverju er þessi ríkisstjórn að bíða ?

Bátasjómennirnir eru búnir að bíða núna í nokkuð á annan áratug eftir því að Alþingi og ríkisstjórn vakni upp af dvalanum og geri það sem almenningur borgar þeim til þess að gera.

Eða er ríkisstjórnin að bíða eftir því að einhverjir "skrifstofu moskus-uxar" í útlöndum komi með hrúgu af lánspeningum á silfurfati, - hrúgu af lánspeningum sem þjóðin þarf ekki á að halda og getur aldrei borgað til baka nema með því að sjómönnum verði gefið fullt frelsi til veiða á Íslandsmiðum.

Tryggvi Helgason, 9.4.2010 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband