En ríkisstjórnin vill samt ESB??

Alveg sama hvaða fréttir koma um þessa blessuðu evru..handónýtum miðli..samt skal þessi ríkisstjórn fara inn í ESB..Iceslave er stimpillinn inn í ESB eins og alþjóð veit..

Væri ekki nær að athuga inngöngu inn í Nafta frekar..Kanada væri okkur nær...persónulega finnst mér að Ísland..Kanada og Noregur ættu að fara í samstarf.

http://www.vald.org/

http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=195795450027&ref=ts

 


mbl.is Óttast að evran hrynji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Evran er þó skárri kostur en íslenska krónan

The Critic, 24.1.2010 kl. 12:57

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Neibb..ekki rétt.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 24.1.2010 kl. 13:00

3 identicon

Hvernig í ósköpunum fá menn það út að evran sé betri kostur fyrir okkur heldur en krónan? Eru menn ekki læsir? Lesið fréttina aftur!

"... hafi einkum áhyggjur af stöðu þeirra landa, sem eru með miklar opinberar skuldir."

Er það ekki Ísland? Hvernig myndi evran þá gagnast okkur?

Jón Flón (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 13:12

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Evran er drasl...krónan er veik vegna óráðsíu stjórnvalda og slæms reksturs opinbera geirans.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 24.1.2010 kl. 13:20

5 identicon

Gjaldmiðill sérhvers lands endurspeglar efnahagsástand viðkomandi lands.

Þegar illa árar á Íslandi, þá er krónan veik. 

Þegar vel árar á Íslandi, þá er krónan sterk.

Þannig er þetta og þannig á þetta að vera.

Það er ekki gott af hafa sterkan gjaldmiðil eins og Evru þegar illa árar í viðkomandi ríki, eins og raunin er á Írlandi og Grikklandi, því þá er ákveðið efnahagslegt ósamræmi á milli gjaldmiðils viðkomandi lands og þess ástands sem ríkir í viðkomandi landi.

Heimir R. Hilmarsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 13:44

6 Smámynd: Egill Helgi Lárusson

Það er ekki rétt að kenna óráðsíu stjórnvalda og slæms opinbers reksturs um slæma stöðu krónunnar. Það er eingöngu bankakerfinu að kenna að krónan er í þetta slæmu ástandi. Bankarnir búa til 99% af peningum í íslenska hagkerfinu. Þeir bjuggu til allt of mikið af krónum til að lána til valinna fyrirtækja og til að halda uppi hlutabréfaverði (sbr. upplýsingar um peningamagn frá Seðlabankanum). Ríkið býr (því miður) ekki til peningana.

 www.umbot.org 

Egill Helgi Lárusson, 24.1.2010 kl. 14:23

7 identicon

Evran er stórhættuleg og upptaka hennar núna er ekki áhættunnar virði. Krónan  er mun betri kostur. Binding krónunnar við þá norsku eða upptaka norskrar krónu er a.m.k. raunhæf leið. Hallast samt að því að sú íslenska sé þrátt fyrir allt besti kosturinn. Samfylkingarfólk bullar bara eins og allir þar inni séu ofurölvi eða kortér í vangefin. Annars fín síða, Liverpool rúlar, og sigurgangan er að hefjast.

Þórir Kristinsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 14:32

8 Smámynd: The Critic

Það er alltaf svona þegar mörg ríki deila sömu mynt að erfitt ástand í einu þeirra skaðar myntina. Það sama er að gerast með dollarann. Ástandið í Californiu er skelfilegt og ríkið að verða gjaldþrota. Þetta skaðar dollarann og bitnar á hinum ríkjunum í sambandinu. Við getum líka litið á það þannig að ef við hefðum verið með norska krónu fyrir hrun þá hefði hún skaddast gífurlega við bankahrunið á íslandi og norðmenn orðið fyrir tjóni.

The Critic, 24.1.2010 kl. 15:04

9 identicon

Ætli Kalifornía verði ekki að taka upp eigin mynt fljótlega til að bjarga sér frá gjaldþroti. 

Gulli (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 16:06

10 identicon

Vitleysa er þetta í þér. Það er búið að vera að tala um þetta síðan evran varð fyrst til og hefur það ekki enn gerst. En hvað er verið að reyna að segja. Er krónan besti gjaldmiðill í heimi.

Ríki sem eru mikið skuldsett í erlendri mynt, þ.e.  ríkissjóðir, þurfa á evrunni að halda. Ef Grikkland væri ekki með evru væri það nú þegar farið á hausinn og með erfitt prógram frá IMF. Þetta er sérstaklega raunin hjá Íslandi. Ef Ísland er með háar erlendar skuldir þá er miklu betra að vera með evru á Íslandi enda getur þá ríkið greitt skuldanirnar úr skatttekjum. Ef skatttekjurnar eru i krónum þá er það ekki hægt. Ísland þarf evru og það eru engin hagfræðileg rök í gangi hérna.

Af hverju er krónan  réttur gjaldmiðill fyrir Ísland. Er einfaldlega litið fram hjá því að við erum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í gjörgæslu, að 30% Íslendinga er tæknilega á hausnum, að kaupmáttur Íslendinga í útlöndum er helmingaður og að fólk er að flytja til útlanda til að vinna fyrir "hard currency". Ó og btw. þá eru gjaldeyrishöft sem er ekki hægt að leysa. Svo já fyrir utan allt þetta og ótal fleiri neikvæða hluti er krónan fín.

 Þeir sem halda því fram að krónan sé framtíðin eru vitleysingar.

Þetta er fáránlegur áróður hjá Morgunblaðinu.

Egill (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 17:07

11 Smámynd: Halla Rut

Ég var að hlusta á Björgvin fv.bankamálaráðherra fyrir tveim dögum þar sem hann sagði Evruna vera okkar mestu björg.

Halla Rut , 25.1.2010 kl. 14:36

12 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Útskýrðu hann á hvern hátt af hverju evran væri svona mikil björg??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 25.1.2010 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband