Enda ekkert umboð til þessa..

Enda hafa embættismenn ekkert umboð til þess að halda einhverju áfram sem er sjálfdautt...

Evrusinnar eru komnir undirskriftalista um það..hvort við eigum að fá  kjósa um það hvort við viljum halda þessu ferli áfram...gott og vel..en afhverju vorum við ekki spurð að því á sínum tíma...hvort við vildum fara í þetta ferli þá.

Ég sé því ekkert til fyrirstöðu að draga þetta umsvifalaust til baka..og það undir eins.


mbl.is Þjóðaratkvæði um ESB ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef fyrrverandi ríkistjórn, gat sett ESB innlimun á stað í krafti meirihluta fylgis síns og án þess að hafa þjóðaratkvaæðagreiðslu um það, þá getur núverandi ríkistjórn stöðvað ESB innlimun í krafti meirihlutafylgis síns og það án þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ekki flókið.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 21.6.2013 kl. 21:18

2 identicon

Veistu Birgir, þetta er besta röksemd sem ég hef séð um þetta.

Mjög einfalt.

Markús Orri (IP-tala skráð) 21.6.2013 kl. 21:20

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sammála Birgir...bara eins og ég hef haldið ávallt fram..

Ægir Óskar Hallgrímsson, 21.6.2013 kl. 22:00

4 identicon

Alþingi samþykkti að fela ríkisstjórn að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB. Æðra og skotheldara umboð til starfa geta embættismenn ekki fengið. Samþykki Alþingis þarf til að draga þá umsókn til baka. Embættismenn hafa ekkert umboð til að fara gegn ákvörðunum Alþingis. Embættismönnum ber skilda til að fara eftir samþykktum Alþingis.

Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn voru meðal þeirra sem greiddu atkvæði með aðildarumsókninni á sínum tíma. Og án atkvæða Framsóknarmanna hefði frumvarpið verið fellt. Í dag eru ekki allir þingmenn nýju stjórnarflokkanna fráhverfir ESB og óvíst hvort á þingi sé meirihluti fyrir að fresta viðræðum eða draga umsókn til baka.

Hábeinn (IP-tala skráð) 21.6.2013 kl. 23:12

5 Smámynd: Austmann,félagasamtök

"Og án atkvæða Framsóknarmanna hefði frumvarpið verið fellt."

Þeir Framsóknarmenn sem greiddu atkvæði með aðildarumsókn, Siv og Guðmundur Steingríms, eru ekki lengur í þingflokki Framsóknarflokksins. Það er kominn nýr meirihluti, sem hefði ekki verið kosinn inn ef meirihluti þjóðarinnar hefði viljað ESB-aðild. Það voru ekki aðeins loforð Sigmundar um að gera eitthvað í málum skuldara (andstætt fyrri ríkisstjórn, sem ætlaði að gera ekki neitt) sem tryggði núverandi stjórnarmeirihluta, heldur líka öll hin líkin og beinagrindurnar sem fyrrverandi stjórn var að dröslast með, þ.m.t. ESB-aðlögunin.

ESB-sinnar eru sífellt að tönnlast á því að kosningarnar voru ekki um ESB, því að "samningaviðræðurnar" hefðu verið settar í bið. Það er alrangt. Í öllum þingkosningum er allt uppi á borðinu. Það er ekki hægt að fela stór pólítísk mistök fyrir kjósendum bara af því að fráfarandi ríkisstjórn vill sópa vandamálunum undir gólfteppið þangað til eftir kosningar.

Austmann,félagasamtök, 22.6.2013 kl. 09:12

6 identicon

Af síðasta þingmannahópi eru 17 já sinnar eftir en 19 nei sinnar. Fólk getur skipt um skoðun á færri árum en liðin eru frá þeirri kosningu og 27 nýir þingmenn hafa ekki kosið um þetta mál. Óvissan er greinilega fyrir hendi.

Hræðslan við atkvæðagreiðslu á Alþingi og þjóðaratkvæðagreiðslu er augljós og ekki ástæðulaus. Stjórnarflokkarnir eru að renna á rassinn með veiðigjaldið, eru hikandi og ráðvilltir í skuldavanda heimilanna og skattalækkanirnar virðast ætla að frestast óákveðið. Missi þeir síðan stjórn á ESB dæminu til Alþingis eða almennings verða þeir að fá þar ótvíræða höfnun á ferlinu til að halda haus...bókstaflega.

Árni M. (IP-tala skráð) 22.6.2013 kl. 18:10

7 Smámynd: Austmann,félagasamtök

"... verða þeir að fá þar ótvíræða höfnun á ferlinu til að halda haus ..."

Einfaldur meirihluti fyrir höfnun á ESB er nóg. Í þjóðaratkvæðagreiðslunum sem haldnar voru í Danmörku um fyrsta Maastricht-sáttmálann og síðan um upptöku evru var höfnunarprósentan um 51% en það var nóg til að fella afgerandi.

Enn hafa þjóðríki eins og Ísland innleitt kröfuna um aukinn meirihluta (QMV), ólíkt ESB. 

Austmann,félagasamtök, 22.6.2013 kl. 18:25

8 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Það átti að sjálfsögðu að standa:

"Enn hafa þjóðríki eins og Ísland ekki innleitt kröfuna um aukinn meirihluta (QMV), ólíkt ESB."

Austmann,félagasamtök, 23.6.2013 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband