Ok...draga þetta til baka...

Ok..draga þetta til baka...þetta var bara grín....það stóð aldrei til að ganga inn í þetta styrkjabandalag....ESB og evran er komið í ruslflokk...og það stóð aldrei til að ganga inn í þetta..

Þjóðin var ekki spurð þegar þessi vitleysa hófst með vinstri flokkunum..og þá hlýtur að vera þannig einnig þegar kemur að því að draga þessa umsókn umsvifalaust til baka.

Lokum Evrópustofu einnig.

Íslenska þjóðin myndi ekki fá þann skaða bættann ef við gengum þarna inn.

Nei málið varðandi krónuna..er sú að við verðum að minnka skuldir hér á landi..og gera hagstjórnina þannig að að við séum ekki endalaust með fjárlagahalla...ef við lögum til í bákninu..pússum þetta upp...mun okkur farnast vel hér á landi eins og ávallt.


mbl.is ESB telur sig þurfa frekari skýringar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alþingi samþykkti að fela ríkisstjórn að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB. Samþykki Alþingis þarf til að draga þá umsókn til baka.

Óhagræðið, mismununin og kostnaðurinn við að standa utan við ESB gera það að verkum að lífskjör hér verða ætíð lakari en ella. Auk þess sem við föllum dýpra í kreppum og verðum lengur að ná okkur upp úr þeim. Við höldum áfram að dragast hægt en örugglega afturúr öðrum Evrópuþjóðum í lífskjörum. Og að lokum verður spurningin ekki hvort við göngum í ESB heldur hvenær og hvort ESB vilji okkur þá eða síðasti maður slökkvi ljósin.

Hábeinn (IP-tala skráð) 21.6.2013 kl. 09:27

2 identicon

ESB er ekki með útvíkkun á dagskrá í dag. Þannig að þeir sem eru órólegir fyrir þessu íslenska ESB ferli þurfa ekkert að vera hræddir. Áherslan hjá bandalaginu er að koma fríverslunarsamningnum við Bandaríkinn á laggirnar.

Gunnar (IP-tala skráð) 26.6.2013 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband