Ummæli nokkra þingmanna!!!

Fróðlegt að fara yfir ummæli þingmanna á þessum tíma....

Steingrímur J....

Ég held að það sé mikill misskilningur, herra forseti, kannske einhver alvarlegasti misskilningurinn, að með áfengu öli flytjist inn í landið einhver bjórmenning. Slíkt gerist ekki á þann hátt. Ég held hins vegar að ókostirnir, sem felast í sjálfu ölinu og brestum mannlegs eðlis í samskiptum við það, komi inn með neyslunni samstundis. Ég hlýt því að vara mjög við því í öllu falli, hver sem örlög þessa frv. verða, að menn haldi að hér sé hægt að setja upp tugi jafnvel hundruð af ölstofum og að það skapi ekki upplausn í samfélagi eins og Íslandi sem ekkert hefur haft af slíku um áratuga skeið." Steingrímur J. Sigfússon.

„Ég hefði talið skynsamlegt að reyna að velja einhvern tiltekinn þröngan styrkleikaflokk og hafa ölið á honum. Það hefði haft áhrif að mínu mati ef við hefðum t.d. ákveðið að áfengt öl skyldi vera af styrkleikanum 3,25--3,75, hvorki meira né minna, búið. Frekar létt öl, en samt klárlega áfengi og eingöngu meðhöndlað sem slíkt og selt sem slíkt." Steingrímur J. Sigfússon, 2. mars 1988.


„Ég óttast að áfengt öl, sérstaklega léttara ölið, geti orðið fyrsta sporið inn á braut vímuefnanna." Steingrímur J. Sigfússon, 2. mars 1988

Margrét Frímannsdóttir...he he

Ég er móðir tveggja unglinga og segi þess vegna nei." Margrét Frímannsdóttir, 9. maí 1988.

Karl Steinar Guðnason...

Ég bið menn einnig að hugsa um þá fjölmörgu sem liggja á sjúkrahúsum vegna slysa og niðurbrots á öðrum sviðum vegna áfengisneyslu og hugsa til þess að verði þetta bjórfrv. samþykkt hefjast hér nýir tímar sem verða áreiðanlega til skaða fyrir þjóðina, fyrir heimilin, fyrir hvern einasta einstakling sem hér lifir." - Karl Steinar Guðnason, 9. maí 1988.

 


mbl.is Bjóða þingmönnum einn ískaldan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband