KR 1-Bradford 2

KR-ingarnir voru afskaplega daprir í kvöld, aðeins Jón Arnór sýndi sitt rétta andlit, maður bara skilur ekki hvað veldur þegar menn fara í stóru leikina, þá verða menn eitthvað allt annað og fara inn í skelina í staðinn fyrir að spila sinn leik, það sama gerðist í bikarleiknum á móti Stjörnunni, þar sem ákveðnir leikmenn bara gersamlega brotnuðu undir pressunni, ef það verður enginn breyting á þá taka Grindvíkingar næsta leik örugglega, ég bara neita að trúa því að Grindavík vinni 3 leikinn í röð, Bradford var góður og bar af í liði Grindvíkinga og gersamlega dregur vagninn, KR-ingar verða bara gjöra svo vel allir sem einn að taka sig til í andlitinu og horfa í spegillinn og spyrja sig spurninga, þetta var ekki boðlegt fyrir stuðningsmenn KR-inga.
mbl.is Stórsigur Grindvíkinga gegn KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Þetta verður flott einvígi - trúi því ekki að þínir menn í borginni gefi þetta svona eftir - baráttu kveðjur

Gísli Foster Hjartarson, 9.4.2009 kl. 21:53

2 identicon

Já þetta var svakalegur leikur .... en þetta var nú ekki bara Bradford, hann var náttúrlega all-svakalegur, en á tímabili var 30 stiga munur.... það er ekki einn maður sem veldur því

Óskar (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 21:58

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Maður með 49 stig ekki maður sem veldur því, he he he, áttu annan en til hamingju með frábærann Kana, hann vinnur þetta væntanlega fyrir Grindavík.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.4.2009 kl. 22:04

4 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

úfffff LIverpool í gær heildsalasynirnir í dag.... hvers áttu að gjalda?

Þórður Helgi Þórðarson, 9.4.2009 kl. 22:58

5 identicon

Ertu ekki að grínast?  KR í allan vetur með kana sem svo getur ekki skít.  Áfram Grindavík, á móti peningaveitunni.

Svenni (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 23:47

6 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Það eina sem heldur Grindavík áfram er góður kani, ekki geta Grindvíkingarnir gert þetta, hafa ekki burði til þess.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.4.2009 kl. 23:53

7 identicon

Ég held að stigadreifing Grindjána segi allt sem segja þarf. Bradford = 47, Birmingham = 17.

Þannig að blammeringar um peningaveitu og kana eiga engu að síður um Grindavík en KR.

En sanngjarn sigur hjá B&B engu að síður.

Rúnar Geir (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 01:03

8 identicon

Voðalega eru menn fróðir hérna um körfubolta.  Í körfubolta eru 5 menn inná í hverju sinni. Það vinnur enginn einn maður leik fyrir eitthvað lið. Bradford skoraði tæplega helming stiga Grindavíkur hver skoraði hinn helminginn?  Af þessum fimm mönnum sem eru inná hverju sinni þá eru þeir ekki allir topp skorarar. Það eru yfirleitt bara 2-3 menn í hverju liði sem sjá um að skora flest stiginn fyrir liðið. Hvað gera hinir? Jaaa samkvæmt ykkur þá eru þeir bornir áfram af þessum tveimur gaurum sem skora öll stiginn. En það er ekki rétt þeir eru aðalega varnasinnaðir og eru þarna til að taka fráköst, setja upp skrín og hjálpa til í leikerfi liðsnins síðan í vörninni skína þessir menn með fastri og góðri vörn.

Vill taka það fram að ég er hvorki KR-ingur né Grindvíkingur svo ég er hlutlaus. 

gaur (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 08:59

9 identicon

Brenton var með 28 stig í leik númer 2 og Lalli kom næstur með hörkuleik. Hvaða bull er að Bradford vinni þessa seríu.

Davíð karlsson (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 11:41

10 Smámynd: Björn Birgisson

Það verður rífandi góð stemning í Grindavík á morgun. Þrettán ára bið eftir Íslandsmeistaratitlinum á enda. Benedikt þjálfari KR segir sína menn brotna á sálinni og ekki höndla álagið. Grindvíkingarnir hins vegar vaxa með hverri þraut. Ég ætla rétt að vona að KR-ingarnir þvælist ekki mikið fyrir okkur á morgun, enda miklu skárra fyrir þá að tryggja sér silfrið í Röstinni, en að tapa gullinu á heimavelli á mánudaginn.

Björn Birgisson, 10.4.2009 kl. 15:38

11 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Ef Grindavík vinna þetta, þá eru þeir ekki verðugir meistarar að mínu mati, en hvað höfum við ekki séð það oft að lið vinna sem eru ekki verðug til þess arna.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 10.4.2009 kl. 18:01

12 identicon

afhverju eru þeir ekki verðugir? Lentu í öðru sæti í deildinni, fóru frekar létt með liðin í úrslitakeppninni og eru að vinna KR sem er besta lið deildarinnar í úrslitum?

Myndi nú segja að lið sem gerir það er alveg verðugt....

gaur (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 18:07

13 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Þetta er bara mín skoðun, þú hefur aðra, ok.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 10.4.2009 kl. 18:14

14 Smámynd: Björn Birgisson

Eftir veturinn eru tvö lið þess verðug að verða meistarar. KR og Grindavík. Ekki gleyma snautlegu viðhorfi KR-inga þegar kreppan rak alla kanana heim, en auðvaldið vestur í bæ gaf kreppunni fingurinn. Mér líkaði Bikarúrslitadagurinn vel og ekki verður minna gaman á morgun!

Björn Birgisson, 10.4.2009 kl. 18:27

15 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Gott, ég ætla bara rétt að vona að Jón Arnór, Jakob, Helgi, Jason og Fannar sýni sitt rétta andlit á morgunn, og sýni virkilega hvað í þá er spunnið.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 10.4.2009 kl. 19:45

16 Smámynd: Björn Birgisson

Sjáum til!

Björn Birgisson, 10.4.2009 kl. 19:54

17 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Ferð þú á leikinn??Er 95% viss að KR-tekur þetta á morgun...en hart verður barist..jafnvel (góð) slagsmál...Kv

Halldór Jóhannsson, 10.4.2009 kl. 19:56

18 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Neibb, ég styð KR og ef illa fer sem gæti gerst, þá vil ég frekar taka reiði mína út hérna heima, en ekki í bílnum á leiðinni.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 10.4.2009 kl. 21:52

19 identicon

Það er nú rétt að leiðrétta þig Björn B.

KR-ingar voru svo sannarlega til í að sleppa því að vera með kana í vetur. Þeir vildu hins vegar gera samkomulag við hin liðin að sleppa því til loka leiktíðar að vera með kana svo að menn færu ekki að fá sér leikmann/menn rétt fyrir úrslitakeppnina, eins og hefur oft sett leiðinlegan blett á deildina. Það voru grindvíkingar ekki til í að gera, en kvörtuðu einna sárast yfir því hversu miklir svindlarar KR-ingar væru.

 Svo fengu Grindjánar sér auðvitað annan kana eftir áramót.

Rúnar Geir (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband