ESB hvað??

Voru/eru ekki ESB sinnar að tala um hvé fagurt það væri að vera í ESB, skuldatryggingarálag okkar var komið í 900 punkta, skuldatryggingarálag Írska ríkisins er komið í 350 punkta, og það gæti hækkað, og menn þar á bæ eru menn að tala um að taka írska pundið aftur, þetta verða forvitnilegar vikur.
mbl.is Óttast að Írland verði gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Írska frjálshyggjan kreberar.  USA next in line!!!

Yrkor Stefflonio (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 21:42

2 Smámynd: Aliber

Það sem Írarnir hafa fram yfir okkur Íslendingana er stöðugur gjaldmiðill. Þeir þurfa ekki að glíma við hressilegt gengisfall á sama tíma og kostnaður lánsfjár rýkur upp úr öllu valdi. Því veitir ESB þeim (í gegnum ECU) vörn gegn gjaldmiðilsvandamálinu. ECU veitir bönkunum einnig þessa margtuggðu lánveitingu til þrautavara ef lausafé vantar. Þetta tvennt höfðum við ekki hér á Íslandi og því er afar líklegt að Írland lendi ekki í sömu súpu og við.

kv,

Aliber, 15.2.2009 kl. 22:07

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Við vonum það besta fyrir frændur okkar, en það eru spennandi tímar framundan, það er öruggt.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 15.2.2009 kl. 22:40

4 Smámynd: Hörður Einarsson

Ólafur Stefánsson

Athugaðu. Það er okkar happ að geta stýrt krónunni okkar þó lítilfjörleg sé, að öðrum kosti værum við verr sett en við erum í dag.

Hörður Einarsson, 16.2.2009 kl. 00:41

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

fall á gengi gerir okkur kleift umfram Íra að vinna okkur út úr vandanum. núna erum við kjörið land til þess að heimsækja við erum ódýr vegna gegnisfallsins. Við erum einnig komin í vænlega stöðu hvað varðar útflutning vegna einmitt gengisfallsins.

Til að Írari geti komið sér í sömu stöðu og við hvað varðar útflutning og ferðamenn, þá þurfa þeir að lækka öll laun og allt verðlag, handvirkt. 

Fannar frá Rifi, 16.2.2009 kl. 00:43

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Til styttri tíma litið og þá einungis á innfluttum vörum. síðan þegar gengið styrkist þá aukast kjör fólks. 

en ef krónan er of sterk þá er verið að skerða kjör atvinnugreina í útflutningi sem mun á endanum skerða kjör almennings því þau fara á hausinn og almenningur missir vinnuna sína. 

Fannar frá Rifi, 16.2.2009 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband