Ég skora á næstu stjórn að draga þessa aðildarumsókn til baka..

Ég skora á næstu stjórn að draga þessa aðildarumsókn til baka...og helst í gær..við höfum ekkert þangað að gera..og eigum að huga að okkar málum sjálf..nógu þreki og orku og mikilli vinnu var haft til þess að fá sjálfstæði..og þessa fiskveiðilandhelgi...að við förum varla að afhenda þessu pakki í Brussell það svo á silfurfati.

Tökum bara til á heimaslóðum...skerum útgjöld niður til utanríkismála um 50%..í um 5 milljarða..sem er ansi há tala þó...evrópusambandið hefur gefið það út að fiskveiðistefna sú sem verður farið eftir er stefna ESB í þeim málum..þannig að ef svo vitlaus við yrðum að ganga inn í þetta styrkjabandalag...sem ég vona svo innilega að við gerum ekki...myndum við sjá evrópska flotann koma að Íslands ströndum..og fiska eins og engin morgundagur væri....

Slítum þessum aðildarviðræðum strax..og skerum í utanríkismálum eins og ég segi um 50%.


mbl.is Ný ríkisstjórn ljúki ESB-viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Samstaða þjóðar

Þann 16. júlí 2009, samþykkti Alþingi ályktun um »að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB«. Ályktunin hlaut samþykki Alþingis með aðeins 33 atkvæðum af 63. Tillögu, um að leita álits þjóðarinnar á þessu afdrifaríka feilspori, var hafnað með 32 atkvæðum.

Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu var þannig alfarið á ábyrgð þess meirihluta á Alþingi sem studdi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Umsóknin var hvorki á ábyrgð stjórnarandstöðnnar á Alþingi né þjóðarinnar.

Allt frá september 2009, hafa verið gerðar kannanir um afstöðu landsmanna til inngöngu landsins í ESB, af Capacent-Gallup. Niðurstöður þessara kannana hafa ávallt verið á einn veg, 60% - 70% þjóðarinnar hefur verið andvígt aðild.

Við blasir, að núverandi meirihluti á Alþingi mun gjalda mikið afhroð í kosningunum 27. apríl 2013. Að stórum hluta er það vegna þess að þjóðin hafnar óskum ríkisstjórnarinnar um inngöngu landsins í ESB. Þjóðin hafnar þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur viðhaft í ESB málinu.

Við undirrituð skorum á Alþingi að stöðva strax viðræður Íslands við Evrópusambandið um aðild Íslands að ESB, með formlegri ályktun. Alþingi hóf viðræður um aðild án samþykkis þjóðarinnar og Alþingi ber skylda til að ljúka þeim strax, án kostnaðarsamrar þjóðarkönnunar.

http://samstada-thjodar.blog.is/blog/samstada-thjodar/entry/1294722/

Loftur Altice Þorsteinsson.

 

Samstaða þjóðar, 7.5.2013 kl. 21:36

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Og hafa ber í huga..að þetta er gert gegn vilja þjóðarinnar...VG hlaut góða kosningu á sínum tíma...út af ESB andstöðu....stöndum vörð um Íslenska hagsmuni...Áfram Ísland.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 8.5.2013 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband