Evran mun veikjast!!

Þetta eru öfugmæli..Samfylkingarfólk er með þessa blessuðu evru á heilanum..enda er líka allt undir hjá þessum flokki ..þau eru með þetta eina mál á sinni stefnuskrá..og ef þetta klikkar..ESB aðild og enginn evra..er flokkurinn samasem í öndunarvel...sannleikurinn er sár..en alltaf bestur.
mbl.is Segir krónuna kalla á gjaldeyrishöft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þeir sem  ekki sjá að krónan er dauð eru bæði  blindir og heyrnarlausir.

Óskar, 5.3.2011 kl. 04:10

2 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Óskar, það er samt meira líf í Krónunni en Evrunni

Horfðu bara á það hvað er að gerast í löndum ESB sem hafa evru, Krónan færir líf í Íslenskan Iðnað og Evran dauða til evrópskra fyrirtækja.

Þau lönd sem best standa sig um þessar mundir(innan ESB) eru Svíþjóð, Danmörk Bretland og Þýskaland. Enda má seigja að þessar þjóðir hafi "sjálfstæða minnt" allar saman. Evran hegðar sér alveg eins og gamla markið gerði

Brynjar Þór Guðmundsson, 5.3.2011 kl. 08:53

3 Smámynd: The Critic

Sammála Óskari.
Brynjar: Danir eru með krónu sem er tengd Evrunni, gengi dönsku krónunnar er fast við evruna.Þannig að Danir eru óbeint með Evru. Einnig gengur Hollendingum líka mjög vel, þeir eru líka með Evru.

Einnig held ég að Ægir sé búinn að gleyma því að íslenska krónan er búin að falla 90% og allt vöruverð búið að tvöfaldast.

Evran mun aldrei falla 90%. Þetta er einn sterkasti gjaldmiðill heims og mun að sjálfsögðu flakka upp og niður eins og dollarinn en ekkert í líkingu við íslensku krónuna.

Krónan er rót vandans á íslandi, hefur alltaf verið það og mun alltaf vera það. Það er stundum eins og íslendingar átti sig ekki á því að þeir eru 300 þúsund og svo fáir aðilar geta ekki haldið úti gjaldmiðil svo einfalt er það.  

The Critic, 5.3.2011 kl. 11:05

4 Smámynd: Óskar

Þa er ótalinn fjöldi fyrirtækja sem eru að flýja héðan með starfsemi sina að mestu eða öllu leyti.  Nú síðast Össur VEGNA KRÓNUNNAR.   Marel er bara með lágmarksstarfsemi hér og CCP er alvarlega að íhuga að fara sem þýðir að mörg hátæknistörf tapast.  

Þetta er þjóðremba og kotbúaháttur að leiða yfir okkur, Island er vegna þröngsýni þegnanna að verða fátækt land þar sem þjóðremba valtar yfir skynsemi.  Við stöndum á krossgötum, við getum valið Evrópuleiðina, að taka upp Evru , ganga í ESB og lifa í friði og vellistingum með vinaþjóðum okkar eða einangra okkur með handónýta krónu, vera sífellt í deilum og þrætum við vinaþjóðir okkar og enda sem bláfátækir molbúar í ónýtu landi.  ,,,Menn tala alltaf um hinar gífurlegu auðlyndir þjóðarinnar,, staðreyndin er su að hér er ekkert nema vatn og fiskur.  Marga þjóðir eiga miklu meiri auðlyndir en eru samt bláfátækar vegna lélegra stjórnarhátta.  Við stefnum hraðbyri í sömu átt ef menn fara ekki að skilja það að við VERÐUM AÐ LOSNA VIÐ KRÓNUNA

Óskar, 5.3.2011 kl. 14:16

5 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Þröngsýni ESB sinna er ákaflega merkileg.

Það líf sem til er hér á Íslandi er til komið vegna Krónunnar. Þú getur skotið á hana eins og þú vilt en ef við hefðum Evru þá væri staðan hér miklu verri. 

Tökum hið klassíska Írland, skuldir eru svipaðar hjá heimilum hér og þar og atvinnulega séð er þetta næstum sambærilegt nema að tækifæri Írlands eru þó ögn meiri þar sem þeir eru nær evrópu, USA og Asíu. Skuldir vegna þeirra hruns eru um 1000 sinnum minni á mann, landið býður upp á meiri möguleika og lengi væri hægt að halda áfram.

http://en.wikipedia.org/wiki/Economy_of_the_European_Union

En samt er staða íslands er þó betri, óskar og gagnrýnandi, þið þyrftuð að fara til Dublinar og tala við heimamenn. Þeir verða ekki lengi að stinga upp í ykkur

Holland er það land sem hefur hvað minnst atvinnuleysi, bara 4.3%,eruð þið að seigja að þetta sé það besta sem ESB hefur að bjóða uppá? Með allar þær "vellystingar" er ekki eitthvað betra þarna, það hlýtur að vera,en 9.6% atvinnuleysi að meðaltali. Raunveruleikin á ekki mikið sameiginlegt við draumsýn ykkar á ESB

Með össur, við sjáum til.

Gjaldmiðill viðkomandi þjóðar endurspeglar efnahag(þó aðallega stjórnun) viðkomandi þjóðar, hér á Íslandi hefur stjórnunin verið í tómu rugli síðan 2007 og versnaði árið 2009, öll skot á krónuna eru í raun skot á þá sem stjórna. Það er ekki vísir á gott þegar leiðtogi þjóðarinnar rekur landið eins illa eins og hún getur og kennir krónunni um til að hjálpa með gæluverkefnið sitt

Annars er tilgangslaust að þræta við ESB sinna um fyrirheitalandið. Þeir eru nefnilega farnir að trúa eigin lygum. Það eina sem er í þeirri stöðu er að benda öðrum á það hvað er rétt og hvað ekki

Brynjar Þór Guðmundsson, 5.3.2011 kl. 18:17

6 Smámynd: Pétur Harðarson

Já hér er ekkert nema vatn og fiskur. Hvaða hlutverk ætli sterkar vatnsauðlindir gætu spilað í framtíðinni? Hafa menn ekkert spáð í því? Það þýðir lítið að ræða þessi ESB mál fyrr en samningurinn liggur á borðinu. Þá er hægt að vega og meta hverju við fórnum og hvað við fáum í staðinn. Ég er hins vegar á þeirri skoðun að það hafi verið algjör tímaskekkja að fara í þessar aðildarviðræður núna. Það væri gaman að vita hver heildarkostnaðurinn sé búinn að vera hingað til. Það hefði þurft að forgangsraða því fé betur en það er víst til lítils að væla yfir því núna.

Pétur Harðarson, 5.3.2011 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband