Ekki rétt!!

Þetta er að mínu mati ósannindi..og eintómt þvaður og bull..hann hefur sagt muni hækka raforkuverð..og þykist vera einhver "business" maður...að taka það sem Íslenska þjóðin á í sínar hendur...við Íslendingar erum alveg færir um að stjórna okkar auðlindum sjálfir.

Við þurfum ekkert á svona fólki að halda eins og þessum Beaty...þá er betra heima setið en af stað farið..málið er bara þannig..að orkulindir okkar eru okkar Íslendinga..okkar kjarabót...og þannig vil ég og væntanlega all margir Íslendingar hafa þetta.


mbl.is Beaty svarar Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður puntur, en af hverju gerðu þá stjórnvöld ekkert í málinu ?

Það er varla hægt að kenna Davíðb Oddsyni um þetta ?

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 13:32

2 identicon

Er einhver að kenna Davíði Oddssyni um þetta? Það held ég ekki. Ég held að fyrst og fremst séum við öll frekar fúl yfir því að enginn hafi vaktað þetta málefni og stoppað þessa vitleysu þegar það var hægt. Núna er það ekki hægt og ein versta ákvörðun sögu Íslands orðin að staðreynd.

Jón Flón (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 13:38

3 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

Jújú, kennum Dabba um þetta mar 

Garðar Valur Hallfreðsson, 21.7.2010 kl. 13:48

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Núverandi stjórnvöld eru algerlega ábyrg fyrir þessum gjörning...það gengur ekki endalaust að segja að þetta sé Sjálfstæðisflokknum að kenna...ekki það að ég sé eitthvað að verja þann flokk..þeir geta bara séð um sig sjálfir.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 21.7.2010 kl. 13:51

5 identicon

Hvenær hefur hann sagst ætla að hækka raforkuverð? Þá notarðu bara eitthvað annað orkufyrirtæki, ástæða fyrir því að Hitaveitu Suðurnesja var skipt í HS Orku og HS Veitur, svo sýnist mér nú hrunið hafa kennt okkur að íslendingar gera ekki allt best eins mikið og við viljum telja okkur trú um það.

Ingvar (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 14:23

6 identicon

það er auðvitað svo að hækkað raforkuverð kemur íslendingum til góða, verðmæti auðlindarinnar hlítur að aukast og auðlindagjaldið að sama skapi.

Stóriðja á Íslandi hefur í áratugi borgað undirverð fyrir raforku, en heimilin hafa þurft að borga brúsan. Ef íslendingar hafa haft stjórnina á öllum þessum auðlindum hingað til, hversvegna er raforka ekki ódýrari til heimilana?

Ég vil nú hvetja menn að gera alvöru könnun á verði á raforku hér á landi og nágrannalandana.

það er alveg til skammar hvernig íslendingar taka á móti fyrirtæki sem vill gera eitthvað hér til uppbyggingar. Múgæsingur, rasismi og þjóðremba á hæsta stigi.

það er skömm að þessu hálfvitasamfélagi.

Ragnar Thorisson (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 14:38

7 identicon

Ragnar, burtséð frá öllum rasisma og múgæsing, sem ég hef reyndar ekki orðið var við og veit ekki í hvað þú vísar, þá er málið samt einfalt - þú lætur ekki auðlindir þjóðar í hendur erlendra fyrirtækja. Það er einfaldlega mjög slæm niðurstaða, sama hverja þú telur kostina vera.

Jón Flón (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 14:44

8 identicon

Íslendingar hafa ekki þroska til að stjórna sínu eigin landi. Eins er hinn venjulegi Íslendingur, því miður, þannig gerður að það má aldrei mótmæla SKOÐUNUM náungans. Aðrir hafa ALLTAF rétt fyrir sér, en ekki maður sjálfur, og það er bara til ein staðreynd; það sem náunginn segir er alltaf rétt og það eina sem gildir. Þjóðin væri betur sett undir stjórn ríkisvalds sem kann að stjórna landinu.

Guðjón Þór (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 15:13

9 identicon

Það komu viðskiptamenn frá Saudi Arabíu hérna strax í byrjun hruns og hafa sést sniglast hér síðan. Frétt í DV segir frá því þeir hafi nýlega komið og skoðað fjöldamörg orkufyrirtæki. Peningar eru vald. Viljum við að landinu sé stjórnað af heimsmeisturunum í mannréttindabrotum sem drepa samkynhneigða, alla sem stunda kynlíf utan hjónabands, höggva hendurnar af þeim sem stela sér brauði til matar og fjármagna hryðjuverkastarfsemi meira en nokkuð annað land, og Islamvæða Evrópu svo fyrir afganginn. NEI TAKK! http://orkuaudlindir.is/

Æ (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 16:11

10 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Gaman að fá comment frá manni eins og Ragnari...svona vitsmuna comment...hann ásakar mig um að ég sé hálfviti...maður sem sakar annan mann sem hálfvita...mann sem hann þekkir ekki neitt...lýsir þeirri persónu meira en nokkuð annað...getur bara ekki verið Ragnar að eini hálfvitinn hérna ert einmitt þú sjálfur.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 21.7.2010 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband