Aldrei má nefna aðhald hjá bákninu???

Um leið og einhver ríkisstjórn vill sýna aðhald, og ráðdeild, þá byrja þau sem tengd eru hinu opinbera að ráðast á þá aðila sem vilja aðhald, þetta lið hjá hinu opinbera heldur að verið sé að ráðast á sig, það er bara verið að gera eins og meirihluti þjóðarinnar vill, sýna aga í rekstri ríkissins, var löngu kominn tími á það.

Vigdís Hauksdóttir er að vinna flotta vinnu, ásamt hagræðingarhópnum, ég tel að þessi Elín ætti frekar að vinna með Vigdísi að bættum rekstri ríkissins, en að gagnrýna hennar störf.

Með þessu móti, ættu vextir og verðbólga að lækka, og það nýtist öllum, einnig þeim sem vinna hjá hinu opinbera... 


mbl.is Sakar Vigdísi um ofsa í garð opinberra starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband