Aldrei má nefna aðhald hjá bákninu???

Um leið og einhver ríkisstjórn vill sýna aðhald, og ráðdeild, þá byrja þau sem tengd eru hinu opinbera að ráðast á þá aðila sem vilja aðhald, þetta lið hjá hinu opinbera heldur að verið sé að ráðast á sig, það er bara verið að gera eins og meirihluti þjóðarinnar vill, sýna aga í rekstri ríkissins, var löngu kominn tími á það.

Vigdís Hauksdóttir er að vinna flotta vinnu, ásamt hagræðingarhópnum, ég tel að þessi Elín ætti frekar að vinna með Vigdísi að bættum rekstri ríkissins, en að gagnrýna hennar störf.

Með þessu móti, ættu vextir og verðbólga að lækka, og það nýtist öllum, einnig þeim sem vinna hjá hinu opinbera... 


mbl.is Sakar Vigdísi um ofsa í garð opinberra starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er auðvelt að tala um aðhald og spila sig mikla í augum fáfróðra. Það er aftur á móti erfiðara að taka á sig sökina þegar vegagerðin hættir snjómokstri og viðhaldi og Landspítalinn hættir að taka við sjúklingum. Eins er athylglisvert þegar stofnanir fara framyfir vegna launahækkana sem fólkið sem krefst aðhalds samþykkti en gerði ekki ráð fyrir við fjárveitinguna. Vigdís Hauksdóttir er ekki að vinna flotta vinnu, hún er ekki að vinna að bættum rekstri ríkisins. Hún er í skæruhernaði gegn hinum almenna opinbera starfsmanni og almannaþjónustunni en til þess notar hún augljósar og heimskulegar lygar og vald embættis síns.

Espolin (IP-tala skráð) 13.8.2014 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband