Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Fyrir Alþingi..ekki Ísland.

Áfallið er fyrir Alþingi ekki Íslendinga..eins og frægt er þá tala stjórnmálamenn til almennings eins og þeir séu ekki þjóðin..þið hyskið á þinginu talið fyrir störfum ykkar..ekki blanda hinum vinnandi Íslending í ruglið þarna hjá ykkur..við sinnum okkar vinnu..þið ekki.
mbl.is Meiriháttar áfall fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í þrot með þetta félag!!

Ég er ekki hissa á orðum Ólaf B. Thors..maður sem var búinn að taka þátt í mikilli uppbyggingu á þessu fyrirtæki..og svo á nokkrum mánuðum koma vitleysingar og tæma allar hillur og alla sjóði eins og hendi sé veifað.

Steingrímur J fjármálaráðherra...maðurinn sem er með svörin við öllum spurningum..það er alveg sama hvað á bjátar..hann veit allt (eða heldur það)..segir að tjónið hefði orðið mun meira ef almenningur hefði ekki gefið aumingjum þessa peninga.

Ég segi að þetta er rangt hjá Steingrím..og vísa þessu til föðurhúsanna..hann er einfaldlega lélegur fjármálaráðherra..og ber að segja af sér.


mbl.is Staða Sjóvár óskiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þremenningarnir og ESB??

Nú er ansi mikið rætt um þremmenningana (Lilju Mó, Atla Gísla, og Ásmund Einar)..stjórnarliðar hafa verið að tala um að þau styddu ekki fjárlögin..sem er rétt..og segja það ekki vera gott að hafa fólk sem styður ekki fjárlög á sínum snærum, en ég tel að ótti Samfylkingar sé ekki út af andstöðu þeirra í garð fjárlaga..heldur það sé frekar andstaða þeirra til ESB.

VG var/er með eitt af sínum stóru málum..að ganga ekki í ESB..og það skuli einmitt vera sá flokkur sem er með eina mestu andstöðu, að ganga inn í þetta kommabandalag..skuli einmitt vera sá flokkur sem stendur að inngöngunni inn í bandalagið.

ESB andstaðan er málið..þó andstaðan við fjárlögunum hafi ekki verið góð..þá tel ég andstöðu þremenningana við inngöngu inn í ESB vega meir en andstaðan við fjárlögin..mitt mat.

VG er flokkur sem greinilega er ekki hægt að stóla á í náinni framtíð...ekki frekar en hinn stjórnarflokkurinn.


mbl.is Átökin mest um ESB-stefnu VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband