Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

415 Milljóna punda???

Þetta er yndislegt, hvað er málið er furða að efnhagur ríkja sé að hrynja, það er of mikið af allskonar fræðingum þeir bara kosta allar þjóðir geigvænlega mikla peninga.

Áfram Ísland.


mbl.is Segir breska fjármálaeftirlitið hafa brugðist gersamlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er algjört æði.

Hverslags rugl er þetta að verða, og hvers konar lýðræði er þetta, Jón Baldvin veistu kannsi ekki að hún er kjörin formaður flokksins þangað til á næsta flokksþingi Samfylkingar, og ef ISG hefur ekki í hyggju að segja af sér þá er það bara þannig, og ef einhver vill fara fram á móti Ingibjörgu Sólrúnu þá bara gerir hann það á næsta flokksþingi, mitt mat á þessu er það að Jón Baldvin ætti bara að slaka aðeins á og setja eigin hagsmuni til hliðar, ég er ekki Samfylkingarmaður, en mér finnst þetta lýsa þessu sem Geir sagði bara fullkomlega, það eru margir flokkar í Samfylkingunni.
mbl.is Ingibjörg Sólrún ekki að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgvin HALLÓÓ!!!!

Hvað er málið hérna, eru þessir blessaðir ráðamenn heiladauðir eða hvað, Björgvin segir;

„Þess utan er mjög alvarlegt mál hvernig þessi skattaskjól hafa verið notuð, og í raun misnotuð, á síðustu árum.

Eitt af meginatriðunum við endurskoðun á þessum lagaramma öllum er að koma í veg fyrir að svona geti gerst."

Bíddu, var hann ekki ráðherra, eða var hann bara puntdúkka, og eins og þingið bara vera með, ekkert gera neitt fyrir fólki'ð í landinu, þjóðin er bara vitleysingar, glæsilegt.

Áfram Ísland.


mbl.is Skattaskjólin misnotuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin borga brúsann!!

Þetta er nokkuð athyglisvert hjá þessum sjónvarpsmanni sem segir að með öllum þessum "bailoutum" hjá bandaríkjastjórn er verið að borga undir banka hér og banka þar, Sviss, Þýskalandi, Bretlandi, Kína, og fleirum þjóðum, Bandaríkin skulda nú þegar 9,7 trilljón dollara.Shocking


Flott.

Mér líst vel á þetta, hann er að leggja pening í að styrkja grunnstoðirnar, en ekki setja pening í handónýta bankastofnanir, sem er mikil bót, það þarf að styrkja í kringum bankanna, ekki styrkja bankanna, með því móti ætti efnahagur fólks að breytast til hins betra.
mbl.is Efnahagspakki markar tímamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræðingar?

Ég er að velta þessu fyrirbæri fyrir mér sem hagfræðingar eru, nú hefur þetta fólk verið ansi mikið í sviðsljósinu og allmargir hafa skoðanir á hvernig hlutirnir hefðu mátt vera öðruvísi, og þeir voru búnir að vara okkur við, og segja okkur afhverju þetta fór svona (bankahrunið), og svo er fullt af hagfræðingum með alls kyns skoðanir, alls kyns lausnir, en eitt skil ég ekki, nú var ég að lesa í dag í stærstu iðnríkjum heimsins eru 36 hagfræðimenntaðir í Seðlabankastjórastöðu af 38, og mín spurning er sú, við stöndum á bjargbrúninni með alla þessa hagfræðinga, og höfum aldrei staðið eins illa, hverslags rugl er þetta.

Menntun Seðlabankastjóra.


Vertu velkominn Dalai Lama.

Við eigum ekki að láta þessa kínverja kúga okkur, sannast enn og aftur að skrímslið reyni enn og aftur að traðka á Íslendingum, algerlega óásættanlegt með öllu og við eigum ekki að hlusta á þessa kínverja.

Áfram Ísland.


mbl.is Mótmæla heimsókn Dalai Lama til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarga bönkunum, til hvers??

Áfram er dælt í þessar stofnanir og til hvers??.. ég bara hef ekki hugmynd, afhverju geta þessi fyrirtæki bara ekki staðið undir sér sjálf, afhverju þurfa önnur fyrirtæki en bankar að standa undir sér, afhverju bara bankar, er það út af því að þeir sýsla með peninga, þvílík steypa að hálfa væri nóg, sjá bara þessa frétt sem var á RUV, þar sem einn forstjórinn var með 240 milljónir í fyrra, er þetta pakk gersamlega skaddað??

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456518/2009/02/10/11/


mbl.is Gengi hlutabréfa lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höldum áfram.

Að sjálfsögðu eru þetta ekki góð tíðindi, en ég ætla mér að horfa fram á við og vona að lífeyrissjóðirnir leggi sitt af mörkum og verji einhverjum fjármunum í verkefni sem skipta máli fyrir landsmenn, með fjölgun starfa ættu þeir að fá meiri pening í kassann hjá sér, og þar af leiðandi ættu þeir að hagnast á því að skapa störf, væri ekki tilvalið varðandi tónlistarhúsið að ríki, borg og lífeyrissjóðir tækju höndum saman og myndu klára verkið, horfum fram, ekki aftur.

Áfram Ísland.


mbl.is Hafa rýrnað um 181 milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að ýta Íslandi með allt niður um sig inn í ESB?

Ég er farinn að hallast á þá skoðun að þetta pakk þarna sem vill ESB inngöngu noti öll tækifæri og alla vinda, sérfræðinga, hagfræðinga, álitsgjafa og allt sem til fellur á meðan við erum í sárum og þá kemur þetta lið og býður okkur velkomna, ógéðfellt með meiru, allt þetta rugl er kannski með vilja gert til þess að ginna Íslendinginn, ógéðslegt.Angry
mbl.is Styður aðildarumsókn Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband