IMF peningar til fólksins.

Ég myndi vilja nota þessa peninga til þess að greiða niður skuldir fólksins í landinu, með því móti er eina leiðin til þess að ná sáttum við fólkið í landinu, hátt í 80% þjóðarinnar kom ekki nálægt þessarri vitleysu, peninganna til fólksins.
mbl.is Húsfyllir í Iðnó - hiti í fundargestum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við fáum að taka þátt í að borga lánið

petur (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 23:23

2 identicon

Óttalega aulalegur fundur.  Múgæsingur og hverju áorka menn með svona? Engu.  Það sem mestu skiptir máli í dag er að okkar menn eru á toppnum. Liverpool eru ekki í neinni kreppu um þessar mundir

Baldur (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 00:11

3 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Hvað með þá sem að skulda ekki neitt? Hvað með þá sem hafa lifað í nægjusemi og safnað fyrir því sem þeir eiga? Það verður laglegt ef að ríkið yfirtaki skuldir neyslufylliraftana sem keyptu sér bíla og flatskjái sem að þeir áttu ekki innistæðu fyrir. Sem betur fer mun ekki einu sinni Jóhanna Sigurðardóttir samþykkja þetta.

Ólafur Guðmundsson, 28.10.2008 kl. 00:13

4 Smámynd: Héðinn Björnsson

Húsnæðislántakendur verða að byndast samtökum og semja um hversu mikið er eðlilegt að afskrifa af þeirra lánum. Það er hagur allra að komið verði í veg fyrir að stór hluti samfélagsins fari á hausinn. Verði ekki fundin lausn á vandamálum þessa hóps hefst spírall kjaraskerðinga, óeirða og landsflótta. Þegar sá spírall kemst á fullt verður ekki endilega aftur snúið. Þið verðið að átta ykkur á að samfélagið okkar er allt undir. Ekki bara kjör okkar og lánagreiðslur heldur friðurinn líka. Fundur eins og sá sem var í Iðnó í kvöld er með til að fólkið í landinu fær tækifæri á að verða gerendur í eigin lífi og samfélagi. Ef það eina sem við bjóðum þeim uppá sem missa vinnuna um næstu mánaðarmót verður gjaldþrot, útburður úr húsum og fréttir af ríkidæmi milljarðamæringanna þá mun ekki verða neinn friður í þessu landi. Það er ekki hótun heldur einföld staðreynd.

Héðinn Björnsson, 28.10.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband