Hvað er málið!

Einkennilegt að öll þessi umræða skuli koma upp núna á þessum tímapunkti, en ekki fyrir einu og hálfu ári síðan þegar krónan var sem sterkust.

Að taka upp evru er enginn lausn að mínu viti, væri frekar nær að skoða dollar, ég tel dollar til lengri tíma litið vera mun sterkarri miðill en þessi evran, og ég tek undir orð Davíðs og Geir Haarde með það mál, dollarinn sem var eitt sinn talist sterkasti gjaldmiðill heims, hann er einnig búinn að veikjast umtalsvert, ríkisstjórn Bandaríkjanna þarf bara að taka til hjá sér, og laga fjárlagahallann sem er geigvænlegur, og þá ætti dollarinn að styrkjast, og þar af leiðandi ætti olían að lækka, en eins og menn vita er veiking dollars ein aðal ástæða fyrir hækkun olíuverðs.


mbl.is Ríkisstjórnin ræði evrumál við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju er dollarinn til lengri tíma mun sterkari miðill?  Ástandið í USA er með þeim hætti að það er engin leið að vita hvað gerist við dollarann.  Ekki næsta árið og alls ekki næstu 10 árin.  Að vera með gjaldmiðil sem er háður stríðsrekstri bandaríkjaforseta held ég að sé bara alls ekki eitthvað sem myndi henta okkur til lengri tíma.

Einar (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband