Áfram Trump.

Trump verður bara ná kjöri, til að forða okkur frá hinu illræmda alþjóðlegri fjármálaelítu..sem er að rústa heiminum...sem er búið að dæla hundruði milljóna dala í kosningasjóð Hillary..þar sem Soros fer fremstann í flokki....Trump er talsmaður réttlætis...en Hillary er strengjabrúða satans.


mbl.is Allt að fara til helvítis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ármann Birgisson

Sammála Ægir.cool

Ármann Birgisson, 18.9.2016 kl. 10:55

2 identicon

Trump fer fyrir fjármálaelítunni

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 18.9.2016 kl. 13:04

3 identicon

Sæll Ægir,

Þið gerið ykkur væntanlega grein fyrir því að Donald Trump stendur fyrir og er boðberi fjármálaelítunnar hér í Bandaríkjunum!  Hann er ríkur, kominn af ríku föðurfólki.  Hann fékk milljón dollara frá föður sínum þegar hann var um tvítugt til að stofna fasteignafyrirtæki.  Það jafngildir um 7,5 milljónum dollara í dag.  

Þegar Trump bauð sig fyrst fram hélt ég að þarna væri gott efni í forseta.  En eftir því sem ég hef séð og heyrt meira þá óttast ég að Trump yrði ömurlegur forseti og jafnvel hættulegur þjóðaröryggi.  Hann er ofboðslega hvatvís og uppstökkur.  Hann hleypur stanslaust úr einu í annað.  Ræður hans eru illskiljanlegar því hann lýkur nánast aldrei setningu.  Það sem skilst er óræðið enda slær hann úr einu í annað í flestum málum.  En hann er frábær ræðumaður, því hann getur látið áhersluorðin heyrast.  Það var annar slíkur uppi í Þýskalandi á síðustu öld.  

Make America Great Again, er slagorðið.  En hvar erum við svona "not great"  

Heilbrigðusmálin standa uppúr hjá mér.  Þó svo að tæknin hér sé með því besta eða sú besta, þá er heilbrigðisþjónusta hvergi dýrari en hér.  Mig minnir að kostnaður á mann sé þrisvar sinnum hærri en í Bretlandi.  Hér kostar heilbrigðistrygging um 80-100 þúsund krónur á mánuði á hvern fullirðinn fjölskyldumeðlim.  Meira en þriðjungur hefur ekki efni á þessum tryggingum.  Lyfjakostnaður hér er hærri en nokkurstaðar annarstaðar.  Lyf frá Kanada kosta iðulega aðeins 20-30% af því sem nákvæmlega sömu lyf kosta hér.  ACA (Obamacare) lækkaði þennan kostnað hjá þeim efnaminnstu.  Repúblikanar hafa heitið því að afnema ACA ef þeir komast í Hvíta húsið.

Fátækt er orðin verulegt vandamál.  Rannsóknir hafa sýnt að um fjórðungur skólabarna reiðir sig á skólamáltíðir til að fá eina örugga máltíð á dag.  Um fimmtungur barna fær ekki aðrar fastar máltíðir en skólamáltíðir.  Um þriðjungur heimila er um eða innan við lágmarksframfærslu.  Um 1950 gat ein fyrirvinna séð um þokkalega framfærslu heimilis.  Hér hefur þróunin orðið sú að laun hafa ekki hækkað í takt við verðlag og lágmarkslaun hafa setið eftir.  Fyrirtæki hafa flutt mannfreka hluta starfseminnar erlendis þar sem laun eru mun lægri en hér, t.d. til Indlands.  Það var mikið um þetta uppúr 2000, en það hefur dregið úr þessu vegna þess að þjónustustig lækkaði mjög verulega.  Fyrirtæki fá líka að skjóta sér undan ábyrgð til greiðslna á heilbrigðustryggingum ef starfsmenn vinna ekki fulla vinnu.  Þau geta líka komist hjá því að fastráða fólk af sömu ástæðu.  Þetta veldur miklu óöryggi hjá milljónum manna, sem geta ekki komist í föst störf.  Fyrirtæki eins og Walmart ráða fólk til að vinna 29 tíma á viku, en 30 tímar eða meira krefst fastráðningar og heilbrigðistrygginga.  Allt eru þetta reglur sem Repúblikanar hafa knúið fram í gegnum árin til að lækka launakostnað fyrirtækja.

Ef menn halda að Repúblikanar fari allt í einu að snúa við blaðinu og styðja breytingar til betra lífs fyrir þá lægstlaunuðu, þá held ég að menn verði að bíða ansi lengi!

Kveðja

Arnór Baldvinssin (IP-tala skráð) 18.9.2016 kl. 16:11

4 identicon

Ja hérna hér... Trump er fjármálaelítan holdi klædd. Voðalega eru sumir illa upplýstir :D

DoctorE (IP-tala skráð) 18.9.2016 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband