..og leyndarlistana líka!!

..og vill ekki þessir vinstri menn ekki opinbera gögnin sem á að geyma til 100 ára...hvernig væri að setja fram tillögu á þingi þess efnis að aflétta þessum leyndarhjúp...spurt er...hvort það séu vinstri menn þar, skyldi þó ekki vera!!


mbl.is Samfylking ræðir vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

það er alveg sama hvað er á þessum "100 ára" lista, það toppar ekkert það að forsætisráðherra landsins sé með falið fé í alræmdu skattaskjóli og segir ekki frá því fyrr en rannsóknarblaðamenn eru í þann mund að afhjupa hann.  Þeir sem enn verja þennan mann ættu nú alvarlega að athuga siðferðið hjá sjálfum sér.

Óskar, 29.3.2016 kl. 13:57

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Eða þeir sem gagnrýna Sigmund..ættu að skoða hausinn á sér all alvarlega....og vita ekkert um hvað þeir eru að tala um...hvað er að því að konan með sinn arf...og hvað hún gerir við peninginn...kemur þér bara ekkert við.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 29.3.2016 kl. 14:09

3 identicon

Ef menn borga skattar og skyldur af sínu "földu" fé.. er það þá falið ?

Af hverju kemur okkur það við hvar þau kjósa að festa sítt fé?

stebbi (IP-tala skráð) 29.3.2016 kl. 14:15

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Akkúrat.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 29.3.2016 kl. 14:30

5 Smámynd: Óskar

þessi rök að þetta se nu bara konan hans halda engu vatni, enda var Sigmundur sjálfur skráður fyrir þessu félagi lengi vel!  Í guðanna bænum reynið ekki að halda svona kjaftæði fram.

Já fé á leynireikningum í skattaskjólum er falið.  Það hefur aldrei komið fram nákvæmlega hvaða skattar og hve mikið var borgað af þessu.  Menn geyma ekkert reikninga á Tortóla af ástæðulausu.

Þið og fleiri framsóknarmenn hefðu gjörsamlega froðufelt og vælt landráð í sifellu hefði t.d. Jóhanna gerst sek um þetta á síðasta kjörtimabili, það þarf enginn að segja mér annað!

Óskar, 29.3.2016 kl. 14:32

6 identicon

Uuuu ... ef einn skrökvar að mér, þá er í lagi að annar geri það.

Ef einhverjir eru óheiðarlegir við fólkið í landinu er í góðu lagi að vinur minn sé það.

Ási (IP-tala skráð) 29.3.2016 kl. 15:15

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvaða "100 ára lista" er verið að tala um, hvaða gögn eru á þeim lista og á hvaða lagaheimild byggist leyndartíminn?

Getur verið að um sé að ræða ákvæði 29. gr. laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 þar sem segir:

"Þegar sérstaklega stendur á getur opinbert skjalasafn ákveðið að synja um aðgang að skjali sem er yngra en 110 ára, svo sem þegar það hefur að geyma upplýsingar um einkamálefni einstaklings sem enn er á lífi eða um almannahagsmuni er að ræða." ?

Ef svo er þá ber að athuga að hér er um að ræða heimildarákvæði, en ekki beina skyldu til að halda gögnum leyndum svo lengi í öllum tilvikum. Ákvæðið er meira að segja þannig orðað að það eigi einungis við í sérstökum tilfellum, til dæmis þegar skjal varðar einkamál einstaklings sem er enn á lífi sem þyrfti þá eðli máls samkvæmt að hafa náð svo háum aldri (sem er sjaldgæft) eða ef ríkir almannahagsmunir eru fyrir því að halda skjali leyndu svo lengi (sem er líka ólíklegt að geti átt við um svo gömul gögn).

Nú spyr sá sem ekki veit: Hefur þessari heimild til að framlengja gagnaleynd einhverntíma verið beitt, svo vitað sé? Ég kannast nefninlega ekki við að hafa heyrt um neina slíka ákvörðun.

Það væri kannski rétt að grennslast fyrir um það hjá Þjóðskjalasafninu, áður en stormað er fram á ritvöllinn með fullyrðingum sem reynist svo kannski enginn fótur vera fyrir.

Samkvæmt 25. gr. sömu laga er almennur leyndartími skjala 30 ár og samkvæmt 26. gr. 80 ár fyrir skjöl sem innihalda persónuupplýsingar. Hvorugt gengur þó framar rétti almennings samkvæmt upplýsingalögum til að fá afhent skjöl nú þegar ef þau gögn innihalda ekki trúnaðarupplýsingar.

Einu gögnin sem eru skylt samkvæmt lögunum að halda leyndum í 100 ár eru sjúkraskrár og aðrar upplýsingar um heilsufar nafngreindra einstaklinga. Ég er stórefins um að það geti átt við um nein af þeim gögnum sem varða störf síðustu ríkisstjórnar, nema þá kannski ef þar innanum leynast læknaskýrslur Jóhönnu og Steingríms.

Ég fæ það sterklega á tilfinninguna að hér sé á ferðinni einhver misskilningur varðandi hina meintu "100 ára leynd".

Guðmundur Ásgeirsson, 29.3.2016 kl. 16:03

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég framkvæmdi aðeins nánari rannsóknarvinnu. Eitthvað sem er alltaf hollt að gera áður en maður dregur afgerandi ályktanir.

Sé það rétt sem mig grunar að með þessari "100 (eða 110) ára leynd, sé verið að vísa til framangreindra lagaákvæða, þá er mikilvægt að halda ákveðnum staðreyndum til haga.

Í fyrsta lagi þá er aðeins um heimild að ræða en ekki kvöð til að halda gögnum leyndum svona lengi.

Í öðru lagi þá er um þrönga undantekningu að ræða frá meginreglunni um aðgang að gögnum sem eru orðin 30 ára, og sú undantekning á aðeins við "þegar sérstaklega stendur á".

Í þriðja lagi, þá var ákvæðum þessum bætt við eldri lög um Þjóðskjalasafn Íslands með breytingarákvæði í frumvarpi til nýrra upplýsingalaga sem voru samþykkt í desember 2012. Það var vissulega á síðasta kjörtímabili, í tíð síðustu ríkisstjórnar. Hérna eru þau lög: http://www.althingi.is/altext/141/s/0868.html

Í fjórða lagi, er hinsvegar nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að lög um Þjóðskjalasafn Íslands voru felld úr gildi í maí 2014, á yfirstandandi kjörtímabili, í tíð núverandi ríkisstjórnar. Það var gert þegar samþykkt voru ný lög um opinber skjalasöfn: http://www.althingi.is/altext/143/s/1260.html

Lögin um opinber skjalasöfn innihalda sömu ákvæði og um ræðir þ.e. þau sem gefa kost á 110 ára leynd í undantekningartilfellum. Flutningsmaður frumvarpsins var menntamálaráðherra Illugi Gunnarsson, og það var samþykkt sem lög frá Alþingi með atkvæðum allra viðstaddra þingmanna úr öllum flokkum, utan eins en Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Þannig er alls ekki sanngjarnt að kenna síðustu ríkisstjórn einni um að þessi ákvæði skuli enn vera í lögum. Það er jafn mikið þeim að kenna sem nú sitja á þingi, bæði stjórn og stjórnarandstöðu. Vissulega má gagnrýna síðustu ríkisstjórn fyrir að hafa komið þessu á upphaflega, en þá má líka gagnrýna núverandi stjórnarmeirihluta fyrir að viðhalda þessu og festa enn frekar í sessi.

Guðmundur Ásgeirsson, 29.3.2016 kl. 17:22

9 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

kann afar vel við fumlausa framsetningu þína Guðmundur Ásgeirsson. Aldrei neinn hasar, bara staðreyndir settar fram og voila:)

Jónas Ómar Snorrason, 29.3.2016 kl. 20:53

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hef nú fengið svar frá Þjóðskjalasafni Íslands, þar sem kemur fram að umræddu ákvæði hafi aldrei verið beitt svo vitað sé.

Svo mörg voru þau orð.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.3.2016 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband