Ef af verður...

...hvert verður þá orkuverðið...verður samið af sér, eins og Íslenskum stjórnmálamönnum er svo kært.


mbl.is Tilkynna framkvæmdir í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þetta verður ekki, svo einfalt er það.

Kínverjar eru ekki heimskir. Það væri hámark heimskunnar ef þeir færu að framleiða ál hér lengst norður í Atlantshafi. Mun skynsamlegra fyrir þá að gera það í garðinum heima. Hráefnið í álið er í næsta húsi og afurðin seld bak við hús.

Að fara að flytja hráefni til álframleiðslunnar um hálfann hnöttinn til að bræða það í ál og flytja síðan afurðina sömu leið til baka, eða heldur lengra, er fráleitt.

Þá býr kínversk stóriðja, ekki síst álbræðsla, við mikinn ríkisstyrk, svo framarlega að vinnslan fari fram innan landamæra Kína. Orkuna fá þeir fyrir nánast ekkert og launakjör í Kína einungis brot af því sem hér þekkist.

Nei, Kínverjar eru ekki heimskir, en þeir eru hins vegar naskir á að finna heimskingja og nýta sér þeirra fávisku til að koma sér fyrir í allt öðrum tilgangi en gefið er upp. Nú hafa þeir fundið nokkra trúgjarna og lítt vitiborna menn í Skagafirði og nýta sér fáfræði þeirra!

Við þurfum því ekkert að spá í hvað orkan til þessa fyrirtækis muni kosta. Engin orkusala mun verða af þessu ævintýri.

Gunnar Heiðarsson, 24.11.2015 kl. 04:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband