Þessi maður....

..ætti bara að segja af sér þingmennsku...hann hefur ekkert fram að færa, annað en að gagnrýna þá sem reyna að vinna.

Við þurfum ekkert á svona fólki að halda, við þurfum fólk sem hefur hugmyndir, og hugmyndin með að Landsbankinn fari að vinna fyrir fólkið er góð hugmynd...er nokkuð viss um að þessi maður hafi ekki betri hugmynd...ef hann á annað borð getur verið með hugmynd að betri hugmynd.


mbl.is Líst ekki á tillögu Frosta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef Frosti hefði virkilega viljað hjálpa fólki þá hefði hann stungið upp á að ríkið sæi einnig alfarið um matvöruverslun með lágmarks álagningu. Þangað fara flestar krónur neytenda og mest svigrúm er til að lækka útgjöld. Einnig gæti ríkið tekið að sér alla útgerð og þjónustu við ferðamenn þannig að arðurinn færi allur í ríkiskassan. Byggingastarfsemi, flugfélag og leigubílar ríkisins mætti einnig nefna. það má ýmislegt gera en að benda bara á bankana, sem allir hata, er ódýrt lýðskrum og lágkúruleg pólitík. Það kallast að sparka í liggjandi mann. 

Vagn (IP-tala skráð) 14.4.2015 kl. 09:19

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vagn.

Þar sem stærsti hlutinn af verði á neysluvörum er fjármagnskostnaður sem kaupmenn velta yfir á neytendur, þá tekur tillaga Frosta einmitt á því vandamáli, og meira að segja af myndarskap.

Svo er það beinlínis fyndið að þú skulir líkja við liggjandi mann fyrirtækjum sem skila methagnaði þrátt fyrir kreppu, og gera það að mestu leyti á kostnað almennings.

Ef eitthvað er ódýrt lýðskrum, lágkúruleg pólitík, og að sparka í liggjandi mann, er það svona níðingsháttur gagnvart því þegar settar eru fram tillögur um að gera eitthvað sem gæti orðið almenningi í landinu til raunverulegra hagsbóta.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.4.2015 kl. 11:20

3 identicon

Stærsti hlutinn af verði á neysluvörum er ekki fjármagnskostnaður þó hann sé eitthvað brot af útsöluverði. Innkaupsverð, gjöld ríkisins, skattar og ýmis annar rekstrarkostnaður vega stórt. Og allir vilja að fyrirtæki sín sýni hagnað. ---- Melabúðin skilaði 43 milljóna hagnaði á kostnað almennings. Hagnaður Sláturfélags Suðurlands á árinu 2014 var 433 milljónir króna á kostnað almennings. Bananar ehf högnuðust um 966 milljónir króna á síðasta rekstrarári á kostnað almennings. Hagar skiluðu fjögurra milljarða króna hagnaði á kostnað almennings. , o.s.frv. Hvar eru tillögur Frosta um að koma þessum hagnaði til almennings?

Það má vissulega kalla það að sparka í liggjandi mann þegar andúð almennings og fáfræði er notuð til að koma höggi á einhvern frekar en málefnalegar ástæður. Það er auðvelt að benda á einhvern illa liðinn og sleppa öðrum sem eru samt ekkert skárri.

Vagn (IP-tala skráð) 14.4.2015 kl. 12:47

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fjármagnskostnaður er víst stærsti kostnaðarliðurinn í verði á almennum neysluvörum. Þetta hefur verið rannsakað.

Með því að draga úr fjármagnskostnaði, gætu kaupmenn lækkað verð án þess að draga úr hagnaði sínum. Gleymum ekki að kaupmenn eru líka vinnandi fólk með heimili sem þurfa að lifa.

Bankarnir eru ekki liggjandi, þeir voru endurreistir, og það á kostnað almennings. Ef það er einhver að spila á andúð og fáfræði hér ert það þú, nafnlausi netverji.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.4.2015 kl. 12:54

5 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Fjármagnskostnaðurinn er stærsti vandinn hér á landi...það er ljóst.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 14.4.2015 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband