LÍÚ dagurinn....

Við höfum alls kyns daga...það eru Írskir dagar..gosloka dagar..nú er komið að LÍÚ dögum..LÍÚ er væntanlega með kampavínsföskur hjá sér..og eru tilbúnir að fagna því, ef Ólafur myndi synja þessum lögum...þá hafa vinstri menn og LÍÚ tekið höndum saman...

Ef af yrði að hann skrifaði ekki undir...þá verður að skera niður hjá ríkinu...sem þessari tölu nemur..það er kannski það sem þau vilja.


mbl.is Forsetinn boðar til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Það á ekkert veiðigjald að vera. Við fáum arð af auðlindinni með sköttum sem útgerðarmenn greiða, tekjusköttum sjómanna og skattgreiðslum þeirra sem þjónusta útgerðina. Hugtakið "þjóðareign" hefur enga lagalega merkingu. Forðumst innihaldslausa frasa.

Það er sama hve miklar tekjur hið opinbera hefur, það eyðir alltaf meira. Ríkið skuldar nú nálægt því 750 milljörðum og ofan á það má bæta 400 milljörðum sem reiða þarf fram á næstu árum í lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Til að standa við skuldbindingar sínar þyrfti ríkið eiginlega að gera allar eigur okkar upptækar.

Að leggjast svona á þá sem framleiða verðmæti er uppskrift að fátækt. Þetta hefur allt verið prófað áður og þetta mun enda hjá okkur eins og öðrum með volæði, vansæld og stórkostlega skertum lífskjörum.

Helgi (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 11:55

2 Smámynd: Óskar

Það verður að segjast eins og er að þessi röksemdafærsla hjá þér Ægir er með þeim furðulegri sem ég hef séð.  Hélt að allir vissu að LÍÚ vill að sjálfsögðu að forsetinn skrifi undir enda fá þeir þar með tugi milljarða afslátt af veiðigjaldi.

Hvernig ríkið ætlar að fjármagna þennan afslátt mun svo koma í ljós, væntanlega skera niður þjónustu við almenning.  Fair skipti eða hvað, milljarðar til auðmanna sem fyrir vita varla aura sinna tal, enda höfum við einhverja ógeðslegustu hægri stjórn sem hér hefur sést.

Óskar, 9.7.2013 kl. 12:16

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Óskar..það sem ég segi á eftir að koma í ljós...ég spyr í skrifum mínum eingöngu spurningar..engar staðfestingar um að hann skrifi undir..eingöngu að leggja það fram..að með þessum undirskriftarlista..bökum við okkur meiri vandamál..ef hann synjar þessum lögum.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.7.2013 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband