Evrusvæðið að hruni komið!!

Það eru vágleg tíðindi sem berast frá evrusvæðinu...hvert ríkið á fætur öðru fellur undir handónýtum gjaldmiðli sem evran er...lönd eins og Írland, Grikkland, Pórtúgal..og Spánn...sem öll hafa evru...evru sem stjórnarliðar vilja að við Íslendingar vilja að við tökum upp...með þvílíkum kostnaði að annað eins hefur ekki sést á byggðu bóli.

Evran er ómögulegasti gjaldmiðill heimsins...Kýpverjar munu líklega ganga úr þessu styrkjabandalagi, vegna þess að rússar með allann sinn svarta pening í bönkum á Kýpur...vilja ekki lána Kýpverjum fjármagn....

Það sem við þurfum að gera hér á landi fyrst...er að losa okkur við þessa kommúnista sem eru við völd um þessar mundir...svo fá fólk sem veit hvað það er að gera.....taka til í ríkisfjármálum...og gera þetta þannig að Ísland sé rekið sem fyrirtæki...sem er ekki í dag.....í dag er þetta rekið sem styrkjabandalag frá ESB....og svo koma Spænski flotinn og breski inn í landhelgi íslands...og hellingur af bátum Íslands verður bundinn við bryggjur.


mbl.is Evrusvæðið að styrkjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lönd eins og Írland, Grikkland, Portúgal..og Spánn...sem öll hafa evru... féllu minna í lífskjörum við hrunið en draumaríkið Ísland með sína krónu (samkvæmt lífskjaravísitölu Sameinuðu Þjóðanna). Og nú er svo komið að Írar hafa tekið fram úr okkur í lífskjörum.

Gallinn við alla gallana sem finna má að evrunni er að sé horft á Íslensku krónuna þá eru sömu gallarnir þar en bara margfaldir. Hreyfist evran um eitt prósent kallar það á áhyggjur og viðbrögð í evrópu sem við sjáum hér þegar krónan fellur um tíu til tuttugu prósent. Þurfi evruríki að sýna aðhald og minka útgjöld um fimm prósent sjáum við mótmæli og kröfugöngur sem ekki sjást hér fyrr en samdrátturinn fer yfir tuttugu prósent.

Það sem evrusvæðið telur alvarlegt ástand er lítið brot af því sem við höfum búið við í áratugi. Ástand sem kostar það meðal annars að þú ert á um 40 prósent lægri launum en ef við hefðum haft evruna og borgar yfir tvöfalt hærri vexti af öllum lánum.

Það er ekki að ástæðulausu að íbúar landa eins og Írlands, Grikklands, Portúgals og Spánar eru yfir áttatíu prósent fylgjandi evrunni og vilja ekki hverfa til fyrri gjaldmiðla.

Ari_02 (IP-tala skráð) 23.3.2013 kl. 20:54

2 identicon

Þetta er hverju orði sannara hjá þér, Ægir. Og það sem þú skrifar svarar fyllilega því sem Ari_02 kvartar undan. Við þurfum ekki evru eða ESB-aðild til að hreinsa til í stjórnsýslunni og rétta við efnahaginn. Til þess þurfum við að losna við alla lifibrauðspólítíkusana af Alþingi, alla 63, og fá hlææft fólk til að stjórna landinu. Síðan þurfum við að reka alla þá mörgu þúsundir yfirmanna úr opinberu starfi sem hafa fengið stöður vegna flokkstengsla, því að þetta fólk er ekki aðeins gagnslaust, heldur beinlínis sníkjudýr á þjóðfélaginu. Og þá er vægt til orða tekið. Það er þar í stjórnsýslunni sem á að skera niður, ekki í atvinnuuppbyggingu og ekki í félagslega kerfinu.

Varðandi krónuna þá hafa komið upp nokkrar hugmyndir, en fráfarandi landráðaríkisstjórn hefur aðeins haft áhuga á að keyra efnahaginn ennþá lengra niður í svaðið.

Til  þeirra sem bíða óþolinmóðir eftir að komast inn í Fjórða ríkið: Örlög krónunnar er afleiðing 70 ára lélegrar hagstjórnar duglausra og spilltra ríkisstjórna. Krónan gæti í dag verið eins sterk og danska krónan ef stefnt hefði verið að fjölbreyttri uppbyggingu iðnaðargreina í staðinn fyrir að reiða sig eingöngu á eina atvinnugrein. Í staðinn varð virði íslenzku krónunnar í lokin hálft prómill af þeirri dönsku.

Menn eru einungis að kenna útrásarþjófunum og bankaræningjunum Jóni Ásgeiri, Sigurjóni, Björgúlfunum, Sigurði E. og Heiðari o.fl. um að bankarnir fór á hausinn. En hverjir voru það sem, eftir að ríkisstjórnin í byrjun aldarinnar gaf vinum sínum bankana, vildu ekki setja fram lög, svipuð og tíðkast á hinum Norðurlöndunum, til að koma í veg fyrir fjársvikin? Alþingi: Þessar duglausu og huglausu afætur við Austurvöll.

Pétur D. (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 14:55

3 identicon

"... og fá hæft fólk til að stjórna landinu" átti að standa.

Pétur D. (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband