Spurning um að hækka laun forstjórans meira?????

Spurning hvort stjórnmálamennirnir muni ekki bara hækka laun forstjóra Landsspítala meira...um svona 500.000 til þess að laga ástandið....stjórnmálastéttinni væri það alveg trúanlegt...það er eins og stjórnmálastéttin sé samansafn af vitleysingum....en að gamni slepptu..þá er þetta ástand ömurlegt...nú eru hjúkrunarfræðingar búnir að setja fram sínar kröfur.
mbl.is Álagið eiginlega ómannlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já segðu þetta er ekki gott mál og ekkert sem réttlætir lakari kjör en það sem þau eru að fara fram á eftir þessa launahækkun forstjórans....

En hvar á að fá pening fyrir þessu launahækkunum og hverju er þetta að hleypa af stað annarstaðar í launamálum...

Það voru afglöp að hækka svona laun forstjórans á sama tíma og allur þessi niðurskurður er í gangi og ekki til peningur til að endurnýja tæki og tól innan spítalans og réttast væri að þessi launahækkun verði dregin til baka og Ríkisstjórnin verði látin sæta ábyrgð á þessu mikla klúðri sínu með því að fara....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.9.2012 kl. 22:29

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

ps. og það þarf að láta forstjórann fara ef hann hefur ekki skilning á þessu...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.9.2012 kl. 22:31

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sammála...en gagnrýni mín liggur aðalega í því...af hverju er verið að hækka launin á einum manni....meira en sem svara launin sem aðrir hafa??..hefði ekki verið nær að fjárfesta í tækjum frekar..og halda friðinn..og byggja upp!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 18.9.2012 kl. 23:00

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Það er eins og mig minnir að þetta hafi verið gert vegna þess að hann fékk vinnutilboð erlendis frá upp á margfallt hærri laun en hann er að fá hérna heima og í staðin fyrir að láta manninn fara var þetta gert...

Af hverju hann var ekki bara látinn fara þarf að útskýra betur eins og þennan 5 ára samningur sem hann Björn var búinn að gera við Landspítalann, hvað er mikið eftir af samningi þeim og hvernig datt manninum í hug að sækja um vinnu annarstaðar á meðan hann var og er samningsbundinn hérna...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.9.2012 kl. 06:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband