Hvaða félag er þetta.....

Er þetta stjórnin sem átti að vera allt upp á borðið...svo núna á að gera göng, í kjördæmi Steingríms J, Sigmundar Ernis, Kristjáns möller, og Tryggva Þórs....ég heimta að það verði gert opinbert hvert þessir peningar fara, þessu liði er ekki treystandi.

Og að auki er tímasparnaðurinn ekki nema 10 mín...ég er ansi hræddur um að það er maðkur í mysunni, og einhver ætlar sér feitann reikning áður en stjórnin kolfellur....fylgist með....


mbl.is Skýrsluhöfundar á nefndarfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólbjörg

Ægir, færslan þín er nánast orðrétt eins og umræðurnar áðan við eldhúsborðið á mínu heimili. Hvernig líðst það að þessir þingmenn seilist í ríkisjóð eftir fé í eigin kosningabaráttu.

Þessi göng eru þvílíkt BULL!

Sólbjörg, 14.1.2012 kl. 12:36

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Já...gott að aðrir tali um þetta...göngin eru algert bull, en ég tel að það ætti líka að spyrja spurninga hvert fara þessir peningar sem í göngin fara, úr ríkissjóð...verðum að standa vörð um þetta pakk, ég treysti þessu liði ekki.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 14.1.2012 kl. 12:53

3 Smámynd: Sólbjörg

Ríkismafíusamspil er ríkjandi hér á landi í nánast öllu. Líklegt að þegar sé búið að semja bakvið tjöldin hvaða verktakafyrirtæki eigi að fá verkið - síðan má búast við feitum framlögum til flokkanna og kannski einstaka prívatvasa.

Sólbjörg, 14.1.2012 kl. 13:09

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ægir eins og talað úr mínum munni líka... Það er engin að skilja þennan forgang og ef það eru einhverjir sem þurfa vegabætur þá eru það þeir sem búa á Neskaupstað og nágrenni...

Þessi göng munu ekki spara meira en 10 mínútur í akstri og það sér það hver heilvita-maður að það er engin heil brú í þessari framkvæmd og hvað þá ef það er svo ljóst að þau eiga ekkert annað eftir að vera en kostnaður fyrir okkur skattgreiðendur...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 14.1.2012 kl. 13:17

5 identicon

Ef þetta líkist ekki frændum vorum í Svíaríki, þá veit ég ekki hvað gerir það. Fyrir um tveim áratugum síðan var tekin ákvörðun um að gera jarðgöng í gegnum Hallandsásinn í Skáni sem er í suður-Svíþjóð. Allt gekk þetta vel í byrjun og þessu var vel fylgt eftir af stjórnmálamönnum í léninu. Síðan fór gamanið að grána. Borar brotnuðu í spað, og síðan var of mikil lausamöl í Ásnum. Samt var áfram haldið langt út yfir öll fjárlög því Svíþjóð er ríkt land, og gefur sig ekki fyrr en í fulla hnefann. Nú gerðist nokkuð sem enginn hafði reiknað með göngin láku eins og gatasigti. Allt vatn á bóndabæunum sem liggja á Hallandsásnum hvarf. Vatnsbílar þurftu að koma og brynna bæði mönnum og skepnum. En fjandinn, sá sem gefur sig. Göran Persson sagði áfram skal haldið. Fengnir voru fræðingar til og með frá Frakklandi. Þeir höfðu ráð undir rifi hverju. Svo tekið var til að fóðra göngin að innan, ég held með efni frá Frakklandi,(er ekki viss)hvað um það.Nú fóru skepnurnar að deyja,(af efninu sem göngin voru fóðruð með) þær sem ekki gerðu það misstu nytina eða veiktust. Bændur fóru nú að láta heyrast í sér.Hvað! Göran Persson sagði áfram skal halda,ekkert væl. Nógir peningar. Nú eru fjögur á síðan ég flutti frá Svíþjóð. Ég veit ekki hvort göngin eru komin í gagnið. Sparnaðurinn með þessum göngum voru "átta mínútur". Nokkurt heildarverð hef ég ekki séð um gerð þessarra gangna og/eða skaðabótakröfur. Svíþjóð er jú ríkt land. Höfum við íslendingar efni á því að leika okkur svona????

Jóhanna (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband