Ömurlegt í alla staði!!

Þetta er svo sorglegur atburður að hálfa væri nægt...og svo til að krydda viðbjóðinn, er verið að sýna þessa vitleysu í þessu svokallaða "sjónvarpi allra landsmanna"..frekar horfi ég á stillimynd á veggnum en að horfa á þessa vitleysu...ömurlegt!!
mbl.is Mótmæla við Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já það er ekki ráð nema í tíma sé tekið að æfa sig fyrir samræðurnar á elliheimilinu Ægir..

hilmar jónsson, 13.5.2011 kl. 19:38

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Snerti þetta taug Hilmar...

Ægir Óskar Hallgrímsson, 13.5.2011 kl. 19:53

3 identicon

Þeir sem standa í mótmælastöðu utna við Hörpuna, með spjöld og tunnur, eiga svo sannarlega hrós skilið fyrir að minna á misréttið á Íslandi. Ég bý á landsbyggðinni og get því miður ekki verið í hópi mótmælenda í kvöld, en hugur minn er hjá því góða fólki. Harpan er dæmi um GEÐVEIKI!! Hver fermeter í þessu húsi kostar amk. EINA MILLJÓN! Hvað hefði verið hægt að gera fyrir 28 miljarða. Endurnýja tæki í sjúkrahúsum? Byggja mannsæmandi ódýrar íbúðir fyrir eldra fólk? Bæta starfsþjálfun öryrkja? Bæta vegakerfið? Fjölmargt annað sem of langt er að telja..........

Ólafur (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 20:02

4 Smámynd: Gísli Birgir Ómarsson

HEYR HEYR Ægir..... Þessi andskotans kofi er búinn að taka margar MIKILVÆGAR milljónir og milljarða úr kerfinu OKKAR...... Hefði verið hægt að reka marga stofnunina með skárra móti, en nú er gert....

Þá minni ég á blogg sem ég skrifaði í haust sem leið, varðandi niðurskurðina í heilbrigðiskerfinu.

Bestu kveðjur til þín félagi.

Gísli Birgir Ómarsson, 13.5.2011 kl. 20:06

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála félagar þetta er viðbjóður og fáránleg tímaskekkja!

Sigurður Haraldsson, 13.5.2011 kl. 20:18

6 identicon

Það hefði verið nær að fara eftir stjórnaskránni og lögum sem alþingi setti nr 52 1992

lesið þau og spurjið svo hvort alþingi og stofnanir ríkisins séu að brjóta landslög og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Undirskifuðu af fulltúum alþingis og samþykkt af alþingi eins og vera ber.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 20:20

7 Smámynd: Óli minn

Helvítis fokking fokk og hananú.

Óli minn, 13.5.2011 kl. 20:33

8 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Get ekki betur séð annað en að ég tali rödd þjóðar minnar...elska Ísland.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 13.5.2011 kl. 20:49

9 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Sori þjóffélagsins er þarna mættur í hlutverki gesta og situr á sínum spilltu rassgötum með helgislepjusvip. Frekar ógeðslegt og skemmir þessa opnun. Þarna eru dæmdir þjófar, spilltir þingmenn og embættismenn, útrásarpakk sem átti stóran þátt í að setja þjóðina á hausin o.s.frv. Oj bara.

Listamennirnir eru hinsvegar góðir og ekkert út á þá að setja.

Guðmundur Pétursson, 13.5.2011 kl. 21:06

10 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Já þjófagengið var mætt,Snobb pakk,Björgúlfur Guðmundsson á næstfremst bekk og meirasegja glæpaspíran Tryggvi þór Herbertsson og fl.....

Vilhjálmur Stefánsson, 13.5.2011 kl. 21:39

11 identicon

Ég er sammála ykkur öllum en...hefði verið betra að hafa beinagrindina sem stóð þarna þegar allt hrundi?

Þessi milljónaborgar kastali tilheyrir 300.000 manna þjóð, ekki satt? Veit það einhver? Fer hagnaðurinn ekki beint í ríkiskassann? Er þetta 28 milljarða lán? Hef ekki kynnt mér málið. Ef Harpan orsakaði niðurskurð hlýtur hún að vera staðgreidd upp í topp, og þá er hægt að þéna á henni frá og með núna! Ég er ekki í vafa um að Harpan á eftir að skila miklum hagnaði með tímanum, ef henni veður haldið vel við, þarna úti á reginhafi í öldugang og seltu... Undarlegur staður fyrir glerhús í málmramma. Vonandi vel tryggð   Auðvitað er hún fáránlega stór, flott og dýr miðað við þjóðfélagsaðstæður. Ekki vafi. "Hálfnað er verk þá hafið er" sagði afi alltaf og nú er löngu komið að fólkinu í landinu!

anna (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 23:27

12 identicon

Ægir, ég elska Ísland líka, en það er engin rödd Íslands, heldur raddir. Það er oftast erfitt, en samfélagið sem við búum í býður upp á litróf skoðanna. Ég bjó í Kína í nokkra mánuði fyrir skömmu og sá að þar er sko ein rödd þjóðarinnar, það hefur voða lítíð með fólkið sjálft að gera, en það er ein rödd. Þá kýs ég heldur litrófið, þó svo að stundum gerist það sem ég er ósammála. Í litrófinu er skoðanatjáning gríðarlega mikilvæg, hryggsúla samfélagsins, þess vegna finnst mér að Hörpu mótmælin hefðu mátt vera stærri og fyrr á ferðinni. Lykilatriðið hér er að þau voru ekki stærri, það voru ekki fleiri sem vildu mæta á svæðið og mótmæla. Margir kunna að vera á móti byggingunni, en fólkið sem vill ekki út úr húsi telst ekki með. Það er blákaldur veruleikinn (ég er ekki að tala um þá sem hreinlega komast ekki, þó þeir vilji). Þýðir það að þeir sem eru á móti byggingu Hörpunnar séu færri en þeir sem samþykkja? Ég veit það ekki... En eitt er klárt, það hefði verið skynsamlegast að drepa hana í fæðingu.

Virðingafyllst, Stebbi.

Stebbi (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 08:42

13 identicon

Svo innilega sammála hverju einasta orði her á undan  um þetta nyja skuldafen landsmanna !!  verð þó að bæta við  að Listamennirnir voru frábærir og þvi verðum við að halda til haga að við eigum mikið af hæfu og frábæru listafólki bæði i músik og fl .listgreinum  En Landsbyggðin  eru orðin verulega þreytt og mædd að halda uppi húsum og  snobbveislum fyrir  fyrir allann þennann söfnuð sem endalaust er að reisa ser minnismerki og halda ser veislur og er fyrir Löngu farið að minna illilega á Þyskalandskeisara  sem var ekki heill á geði og reisti hverja höllina á eftir annari sem minnimerki um sig og auðvitað setti Þysakand á hausinn !!    ..... En eins og þið eg elska Island og þoli ekki þetta svikalið sem enn situr her allstðar  frá A-Ö   og brennir upp allri von um gott og fagurt Island aftur og hirðir allt sem hægt er i eigin þágu !!.....En lika hallærislegt af okkur að leyfa það  að svona haldi þetta áfram .... hvort sem við erum nær eða fjær

Ransý (IP-tala skráð) 14.5.2011 kl. 15:42

14 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

þeir ætla víst að reisa stittu af Bjögúlfi Guðmundssyn fyrir framan Hörpu.....Ég veit ekki hvort það er öðrum til viðvörunar...

Vilhjálmur Stefánsson, 14.5.2011 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband