Þykist Össur vera saklaus??

Ég held að Össur ætti ekkert að vera að tala um aðra í þessarri skýrslu..átti hann ekki í SPRON..þegar verðið var í toppi og margir töpuðu háum fjárhæðum..og Össur var í stjórninni sem var í fallinu..það er eingöngu VG-liðar sem eru stikkfríir..og ættu að verðlauna þá með hærra fylgi..
mbl.is „Valdarán Davíðs Oddssonar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er með þessum orðum að segja að þjóðstjórn hafi verið óhugsandi bara vegna þess að Davíð taldi þörf á henni. Hann var sem sagt ekkert að hugsa um hvort Davíð færi með rétt mál eður ei (sem ég legg ekki mat á hér) aðeins að passa upp á Davíð færi nú ekki að hrifsa af sér bitann af kökusneiðinni sem hann var búinn að næla í. Íslenskir stjórnmálamenn virðast allir eingöngu hugsa um rassinn á sjálfum sér.

assa (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 21:54

2 Smámynd: ae

Ég er að mörgu leiti sammála þér með VG, þau voru á þessum tíma, sérstaklega Steini J, að hamra á þessum hlutum um að eitthvað þyrfti að gera en var gert grín að þeim.

Í dag standa þau uppi sem ákveðnir pólitíkusar sem eru með hreinan skjöld gagnvart þessu tímabili og ég held að við verðum að gefa þeim smá tíma til að halda áfram þau svo að þau hafi haft tíma til að gera fullt af hlutum. 

Einhvern veginn treysti ég þeim best af þessum flokkum í dag til að gera eitthvað rétt í stöðunni, en vil helst sjá óflokksbundna sérfræðinga taka við tímabundið á meðan hinir flokkarnir og Alþingi í heild sinni hreinsi sig af kúlulánaþegum og tengslanetakerfi sem enn er við lýði í dag. 

Þetta eru stórar óskir en nú er tíminn!!

Ef ekki þá vona ég að næsta búsáhaldarbylting verði grimmari í því að ná úrbótum fram en láti það ekki bitna á lögreglumönnum, það er líka fólk með sín húsnæðislán og bílalán sem rokið hefur upp, og að eyðileggingarþörf verði geymd í harðlæstu bankahólfi til nota við bankana sjálfa!!

kveðja AE

ae, 13.4.2010 kl. 01:37

3 identicon

Af hveru getur hinn Íslenski Óbama ekki bara tekið við öllu saman?? Ég held að Páll Hreinsson sé núna betur búinn en nokkur annar að femja valdarán! Ríkið hans Dabba kóngs er því miður fallið...

Breki (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 11:20

4 identicon

Sammála þér Breki, Páll og reyndar nefndin öll eru búin að standa sig vel og ættu að taka við.  Það væri athyglisverð breyting sem mig grunar að mundu falla í mjög góðan jarðveg hjá þjóðinni.

Ævar (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband