Semja um hvað???

Maður er orðinn alveg kolruglaður..á ekki að kjósa um hvort þessi samningur verði felldur éður ei..ok ef það á að fínpússa gamla samninginn þá skil ég þetta..en ég skynja einhvern veginn að þetta pakk á þinginu ætli sér ekkert að leyfa Íslendingunum að kjósa..þau taka væntanlega alþjóðasamfélagið fram yfir (hvað sem það nú þýðir)..en skítt með það.

En allt betra en einhvern frá Norðurlöndum..eintómir svikarar...allavega engann frá Svíþjóð.Bandit


mbl.is Kanadískur sáttasemjari?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þessi kosning er auðvitað hreinn og klár fíflaskapur.  Á þá ekki að kjósa um hvert einasta lán sem þjóðin tekur hvort lánasamningar séu ásættanlegir?  Hvað með 300 milljarða gjaldþrot seðlabankans, á þjóðin að kjósa um hvort sú skuld verði greidd ?  Hvað með lánin frá Norðurlöndum sem eru á mun verri kjörum en Icesave lánið?  Eigum við ekki að fá að kjósa um þau líka ?  þetta er hreinræktaður fíflaskapur.

Óskar, 31.1.2010 kl. 19:28

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kjósum að sjálfsögðu á tilteknum tíma. En þurfum að taka þjóðar-ábyrgð á svika-bönkum í stjórn Íslendinga-embættismanna-svikara sem enn eru að á lögreglu og dómsmála-grunni með 100% svikum. M.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 31.1.2010 kl. 19:50

3 identicon

Seðlabankar geta ekki orðið gjaldþrota, sama hversu mikið þeir fokka upp þá geta þeir alltaf prentað meiri peninga. Ekki halda svona vitleysu fram.

Blahh (IP-tala skráð) 31.1.2010 kl. 19:58

4 identicon

@Óskar

Þetta er ótrúlega léleg samlíking hjá þér.

Seðlabankinn átti töpuð útlán, þannig að tap seðlabankanns snýst ekki um að borga eithvað tap, útlánin eru töpuð.

Og lánin frá norðurlöndonum eru lán sem koma sem peningar til landsinns, það liggur beint við að það eigi að borga þau.

Icesave málið er milliríkjadeila, þar sem bretar og hollendingar krefjast skaðabóta á veikum lagalegum grundvelli. Ef lagaleg krafa er óljós er alveg klárt að eðlilegt er að samkomulag hljóði uppá einhversskonar samábyrgð.

viktor (IP-tala skráð) 31.1.2010 kl. 20:39

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Óskar, það er ekki verið að taka lán það er verið að tala um að ábyrgjast greiðslur frá stofnun sem þarf ekki ríkisábyrgð og þessvegna eigum við ekki að borga vexti/fjámagnsgjöld því að ef það kemur í ljós að lagalega sé það okkar að borga þá erum við líklega að tala um skaðabætur en ekki afborgannir af lánum og svo má ekki gleyma því að það eru félög og bankar sem bíða í röðum eftir þbví að sjá hvernig þessir samningar hljóða svo það hlýtur að vera okkur í hag að reyna hvað við getum að ná góðum samningum.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 31.1.2010 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband