Láta þá borga eða..taka jörðina af þeim!!

Alltaf kemur meiri drulla upp úr jörðinni, ég ætla rétt að vona að annað hvort verði lánin innheimt eða að jörðin/jarðirnar verði teknar af þessu fólki, annað telst  til spillingar...mitt mat.
mbl.is Skulda milljarð út á jarðakaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki spurning - annað hvort greiða þeir þetta - án afsláttar !!!- Eða jörðin verður tekin af þeim.

 Annað kemur ekki til greina.

Við ,,venjulega" fólkið sem ekki nutum góðærisins, en eigum að greiða allt fyrir þessa bankastjórnendur/útrásarvíkinga sem komu okkur í þessi vandræði. Þeir eru jafnvel með summur á Tortóla eða sumir búnir að koma eignum undan t.d. tengdapabbi eins sem er orðinn ,,eigandi" af nýja húsinu sem þessi kúlulánsþegi var að flytja inn í. Sukk og svínarí..... arrrggggg......

ella (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 08:41

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Svo skal "skríllinn" borga sitt..fólkið sem borgaði af sínum skuldum..en er látið borga brúsann fyrir viðbjóðinn.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 7.11.2009 kl. 09:39

3 identicon

Hver sá sem heldur að þeir eigi eftir að borga krónu í viðbót inná þetta lán er bara einfaldur.  Hlutafélagið verður einfaldlega látið fara á hausinn og þeir tapa bara klinnkinu sem þeir settu upphaflega í það og eru eflaust búnir að fá margfallt til baka með afnotum að jörðinni. Svona er bara þessi viðbjóður og þeir sjá ekkert bogið við þetta.

BEK (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 10:53

4 identicon

Sæll Ægir!

félag fjármálasnillinganna er líklega gjaldþrota. Jarðirnar verða teknar uppí skuld. Ekki veit ég um markaðsverð þeirra nú en mjög ólíklegt er að auðvelt sé að kaupa þeim í verð. Ríkið hefur sem sagt eignast jarðir og verður að afskrifa skuldir.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 11:03

5 identicon

Ég segi; látum þá borga og tökum jarðirnar líka. Þetta er aðferðarfræðin sem bankarnir nota t.d. gagnvart bílalánum og ýmsu öðru.

Haraldur Aðalbjörn Haraldsson (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 16:03

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Haraldur þú hefur rétt að mæla borga missa jarðirnar og sitja inni vegna þjófnaðar

Sigurður Haraldsson, 7.11.2009 kl. 20:26

7 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Mér sýnist við vera á sama máli hérna inni..það er sama tungumáli..þó stjórnvöld..bankar..og SÍ,  eru á einhverju tungumáli sem enginn skilur.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 7.11.2009 kl. 23:12

8 Smámynd: Sævar Einarsson

Þessir menn eru snillingar ! ég vill reka ríkisstjórnina frá og fá þessa snilla til að reka ísland sem fyrirtæki, þeir kunna öll trikkin til að fá afskrifað allar skuldir !

Sævar Einarsson, 8.11.2009 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband