Samfylkingarkosning!!

Þetta var vitað allann tímann, Samfylkingin er að planta sínu fólki hér og þar, flokkurinn sem gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn fyrir spillingu, og VG tekur þátt í spillingunni eins og þeir séu handbendi djöfulsins, af hverju var Már bara ekki skipaður í embættið, hann var að mati Samfylkingar sá eini sem gat fengið "jobbið" kemur ekkert hæfileikum mannsins í starfið á nokkurn hátt, meira segja Lalli Johns væri skipaður ef hann væri flokksbundinn.
mbl.is Már skipaður seðlabankastjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Platan hjá Birni S. Lárussyni hlýtur að vera biluð, eða þá að græjurnar hans hafa geysifeitt ekkó:  Þessi klausa hans bergmálar á hverri bloggsíðunni á fætur annarri.  Frumlegur náungi?

Tobbi (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 18:26

2 Smámynd: Smjerjarmur

Þetta er nu ekki malaefnalegt innlegg hja þer.  ERtu að likja manninum við Lalla Johns?

Smjerjarmur, 26.6.2009 kl. 20:15

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Nei, þó maðurinn héti Lalli Johns og væri sá mæti maður í Samfylkingunni, þá hefði hann komið til álita sem bankastjóri SÍ, mitt mat, spurning um flokkshollustu.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2009 kl. 20:38

4 identicon

Hver er spillingin við ráðningu þessa manns? Var ekki skipuð nefnd undir forystu Jónasar Haralz til að meta hæfni umsækjanda? Ekki heldur þú að Jónas dragi taum Samfylkingar?  Eigum við ekki að fagna því að nú er loksins farið að ráða faglega í þessa stöðu. Við vitum öll hvernig ráðið hefur verið í þessa stöðu fram að þessu.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 22:17

5 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Svavar, ég vissi allan tímann að Már fengi stöðuna..hhmmmm einkennilegt var ég þá bara með einhver hugskeyti held ekki, ekki vera svona einfaldur, þetta er allt saman fyrirfram ákveðið af das elite.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2009 kl. 22:20

6 identicon

Ég hlýt að gefast upp fyrir svona sterkri röksemdafærslu!!!!!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 22:29

7 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Ok..hvar er Jónas Haralz í flokkspólítíkinni, að vera að þræta fyrir svo augljósan verknað er barnaskapur.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2009 kl. 22:33

8 identicon

Núna bullar þú Ægir. Veistu ekki að Jónas er flokksbundinn Sjálfstæðismaður.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 22:43

9 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Trúi því ekki, vil fá sönnun þess efnis, ef ekki þá er hann "réttum" megin.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2009 kl. 22:55

10 identicon

Ægir þú verður að trúa því. Jónas var í tugi ára hugmyndafræðingur FLokksins í efnahagsmálum. Er ekki botninn dottinn úr bloggfærslu þinni?!!!!!!!!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 23:09

11 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Neiii..ég vil fá sönnun þess að hann sé flokksbundinn, ég er flokksbundinn og vil fá sönnun þess að hann sé það..er þetta eitthvað flókið.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.6.2009 kl. 23:22

12 identicon

Mikið er ég hissa á fáfræði þinni Ægir. Spurðu bara flokksfélaga þína.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 23:30

13 identicon

Ætli Már vit að hann eigi bara að fá 950 kall í laun?  Á hann ekki eftir að hætta við þegar ganga á frá ráðningarsamningnum, jafnvel þótt hann sé hliðhollur Samfylkingunni?

Jón Axel (IP-tala skráð) 28.6.2009 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband