Viðskiptaráðherra sagði að þetta líti betur út???

Sigmundur segir að það megi búast við öðru hruni bankanna, en svo sagði Gylfi Magnússon að staða bankanna væri mun skárri en ætlað var í fyrstu, þetta er ekkert að fara að breytast eintómar lygar út og suður og enginn getur sagt sannleikann, þessi stjórn getur bara ekki ráðið við þetta verkefni sem henni var falið, þetta er nú ekki glæsileg sjón.
mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Það getur engin ríkisstjórn bætt úr tuttugu ára glæpaverkum sjálfstæðisflokksins á þremur mánuðum!

corvus corax, 23.4.2009 kl. 20:39

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Um hvað ertu að tala??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 23.4.2009 kl. 20:42

3 identicon

Hefurðu ekki fylgst með síðustu 20 ár, Ægir?

Spyrillinn (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 23:46

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Með hverju, bönkunum, pólítíkinni, almenningshlutafélögunum sem voru á hlutabréfamarkaði, lögum á þingi, hvað???

Ægir Óskar Hallgrímsson, 23.4.2009 kl. 23:48

5 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Já, af hverju má aldrei UPPLÝSA þjóðina um SANNLEIKANN?  Bara sú staðreynd að ennþá er verið að "ljúga að okkur & halda leyndum skýrslum" leiðir til skorts á trausti og maður fær í raun bara kuldahroll að hlusta á þessa "atvinnulygara sem eru í stjórnmálum".  Nú á að reyna að "tala upp þjóðarskútuna - alveg eins og reynt var að tala upp svikamyllur bankanna".  Ég frábið mér að vera þátttakandi í slíkum blekkingar leik!  Hélt að nóg væri komið að "sýndarveruleika & lygum", en ég sé að gera á aðra tilraun til að hafa okkur (þjóðina) að bjánum...!  Hingað og ekki lengra, við biðjum um sannleikann, ekki "endarlaust froðusnak..."  Truth will set yOu free..!

Gleðilegt sumar - kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 23.4.2009 kl. 23:54

6 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Ég vil bara hafa þessa líkingu eins og að fara út í búð, setja vörurnar sem ég ætla að kaupa, set þær á bandið, þar er því rennt í gegnum skanna sem reiknar hvað kostar, ég læt afgreiðslumanninn/konuna fá pening, og fæ til baka ef þarf, svona eiga viðskipti að ganga.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 24.4.2009 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband