Gylfi brillerar, eða þannig!!

Hvað er málið með þennan Gylfa, er ekki árshátíð hjá Sparisjóðsbankanum í kvöld og hann kemur með þessi tíðindi fyrir árshátíðina, er ekki allt í lagi með hann.

Hefði ekki verið nær að koma með þessi tíðindi fyrr í vikunni, ef þetta var svona augljóst að þetta myndi gerast, hverslags vinnubrögð eru þetta, það virðist ekkert skána þessi vinnubrögð sem er með viðskiptaráðuneytið hverju sinni, allir sömu fuglarnir.Whistling


mbl.is SPRON til Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Skarplega athugað. Sumum virðist lagið að eyðileggja gleði annarra. Hefði ekki verið hægt að bíða þar til í fyrramálið. Að minnsta kost hefði starfsfólkið þá getað áunnið sér timburmennina af gleði.

Ragnhildur Kolka, 21.3.2009 kl. 22:09

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jes...Kristu.... Þetta er frétt út af fyrir sig!!!!!!!

Haraldur Haraldsson, 21.3.2009 kl. 22:13

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ætli Gylfi eigi nokkurn þátt annan er tilkynna þeim sem rekið hafa sig í þrot að leiknum sé lokið. Eyðileggja gleði annarra... Ragnhildur.. Árshátíð... ætli nokkrum hafi verið það meira ljóst að leiknum var lokið en stjórnendum þessa banka... spyrjum frekar að þeirra þætti en þess sem tilkynnir.

Jón Ingi Cæsarsson, 21.3.2009 kl. 22:21

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mér skilst að stjórnir beggja hefðu lagt fram beiðni um yfirtökuna.  Gylfi átti ekkert val um dag, en hefði hugsanlega getað gert meira til að koma í veg fyrir þetta.  Ég veit að vísu ekkert um það og mjög líklega höfðu allar leiðir verið kannaðar til þrautar.  Báðir þessir aðilar eru fórnarlömb bankanna, þar þeir tóku lán til að lána bönkunum.  Þegar bankarnir fóru í þrot, þá sátu SPRON og Icebank uppi með skuldirnar.

Marinó G. Njálsson, 21.3.2009 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband