Bernanke veit..

Ben Bernanke Ég er ekki hissa á orðum Bernanke, og hann veit að þessi fyrirtæki eru illa rekinn, og bíða eftir "sósíalískri" aðstoð og gera ekkert í því að laga reksturinn, ég skynja það að hann veit að þessi skítafyrirtæki eiga eftir að sökkva dýpra, glæpahyski.
mbl.is AIG í raun vogunarsjóður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Trúir þú því að Bernanke hafi ekki vitað fyrir löngu hvarnig í pottinn var búið? Þetta eru sýndarréttarhöld í anda gamla sovíet. Hann hefur sjálfur breytt bandaríska seðlabankanum í einn allsherjar vogunarsjóð og prentað cash for trash í mánaðavís. Hann og Greenspan ættu að vera í rafmagnsstólnum en ekki við stjórn fjármála.  Þeir eru að ganga frá almenningi í þessu landi og draga um leið heiminn með sér.  Bandaríkin eru ekki Lýðræðisríki, þau eru Plutocracy samkvæmt nákvæmustu skilgreiningu.  1% þjóðarinnar á nú þegar 75% af auði landsins og bilið breikkar.

Obama er leikbrúða þessara Oligarka og leikur sama leikinn og Bush. Change wer það sem hann lofaði fólkinu og það er það sem fólkið fær. Change í skilningnum skiptimynt eða smáaurar.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.3.2009 kl. 21:28

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

jú, mér er kunnugt um það, hann er ekki eins og fyrirrennari sinn Greenspan sem allir höfðu svo ofur trú á, sem átti þátt í stöðunni eins og er komið fyrir í dag.

Ben Bernanke er að ég tel, maður raunveruleikans, ef þú getur ekki staðið, dettu.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 3.3.2009 kl. 21:31

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hvernig í ósköpunum færðu það út? Hann hefur einmitt rekið áróður fyrir og tekið þátt í að endurreisa og ríkisvæða fjármálastofnanir, sem eru ekkert annað en spákaupmennskubákn og vogunarsjóðir. Þú ert frekar að vitna í þá sem gagnrýna hann hvað harðast og telja að þessar ruslstofnanir eigi að falla á eigin glæpum og óábyrgð.

Hann er ekki í neinu öðruvísi en Geenspan.  Horfðu á hvað maðurin er að gera. Svo er vert að nefna svona í framhjáhlaupi að federal reserve er hvorki federal né reserve, heldur hlutafélag stæstu fjármálastofnana í USA, svo það skal engan undar þjónskuna. Þetta er glæpamaður af fyrstu gráðu.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.3.2009 kl. 22:52

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Þú ert dálítið einfaldur, heldur þú að hann sé einn sem ræður stöðu mála, það er ekki pólítisk sátt með að þjóðnýta bankanna sem ég tel vera bestu hugmyndina, vegna þess að einstaklingurinn höndlar ekki stjórnun stofnunar þar sem er verið að sýsla með fjármagn.

Þess vegna er farinn þessi leið að "sósíalla" þessar glæpastofnanir og láta þetta líta út að þetta sé allt í lagi, þetta er ekkert í lagi, sukkið mun halda áfram.

Mitt mat er að Bandaríkin á að fara sömu leið og við gerðum, þjóðnýta stærstu bankanna og lækka kostnað umtalsvert, með því móti gætu Bandaríkin náð sér hraðar upp en ella, þessi aðgerð sem er í gangi mun engann veginn duga, og þessir stjórnendur þessara stofnanna munu sukka fram í rauðann dauðann.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 3.3.2009 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband