VG ekki treystandi frekar en fyrri daginn!!

Mæli með því að almenningur sniðgangi þennan flokk, sem vill afhenda lýðræðið í hendur alþjóðafjármálakefisins...þetta eru tímar ESB flokkana, VG Píratar Samfylking og Viðreisn...allt flokkar viðbjóðs.


mbl.is Vill ákvæði um valdaframsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta má aldrei nokkurn tíma gerast, sama hvað landráðahyskið, sem Katrín tilheyrir, hamast. Frekar ætti að fara í hina áttina, að breyta stjórnarskránni til að koma í veg fyrir landsölubrölt quislinganna.

Núverandi 21. grein stjórnarskrárinnar hljóðar svo:

21. gr. Forseti lýðveldisins gerir samninga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkisins, nema samþykki Alþingis komi til.

Ég legg til að ákvæðinu verði breytt þannig að það verði:

21. gr. Forseti lýðveldisins (eða ráðherrar hans) gerir samninga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkisins.

Ef þessi breyting á stjórnarskránni verður framkvæmd, þá mun allur vafi verið tekinn af. Þá mun aldrei verða hægt að sækja um aðild að ESB, sama þótt það verði quislingastjórn í nánustu framtíð. Þessi breyting má vera samhliða breytingu á stjórnarskránni hvað varðar auðlindaákvæði og ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur.

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.9.2016 kl. 00:29

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ægir. Það er rangt að nefna Pírata sem sökudólga í þessu sambandi. Stefna Píratara er að þetta eigi að ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem ESB-aðild yrði að sjálfsögðu hafnað. Það er miklu sterkara að hafna ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu heldur en af geðþótta flokkspólitískrar ríkisstjórnar (sbr. hið auma bréf Gunnars Braga). Þess vegna er ESB-stefna Pírata sú besta sem völ er á.

Góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.9.2016 kl. 01:03

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, eruð þið Píratar eitthvað "tregir" eða hvað?  Það hefur svo oft komið fram að það er EKKERT sem heitir KÖNNUNARVIÐRÆÐUR VIÐ ESB heldur AÐLÖGUNARVIÐRÆÐUR. Ríki sem hefur viðræður við ESB hefur lýst yfir áhuga á INNLIMUN þannig að þessi ESB stefna Pírata ekkert annað en "húmbúkk" og í besta falli lýðskrum....

Jóhann Elíasson, 21.9.2016 kl. 07:36

4 identicon

Ég gæti ekki verið meira ósammála, það er alls ekki kominn tími til að veita misvitru stjórnmálafólki eins og henni leyfi til að framselja vald út fyrir landið í voninni um mjúkann stól í Brussel eða annarsstaðar.

Enn og einu sinni sýnir hún að hún á alls ekki heima í stjórnmálum.

Halldór (IP-tala skráð) 21.9.2016 kl. 08:34

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jóhann. Þú ert annað hvort að misskilja eða snúa út úr.

Ef þú hefur einhverntíman séð það sem ég hef skrifað um þetta efni, sem ég veit að þú hefur gert, þá veistu að ég hef lagt mig fram um að benda sem víðast á þessi einföldu sannindi sem þú nefnir. Að sjálfsögðu er ekki um neinar könnunarviðræður að velja. Spurningin um aðild að ESB snýst einfaldlega um það hvort gengist sé undir skilmála Lissabon sáttmálans eða ekki. Ef þú hefur haldið að ég skilji það ekki þá ertu líklega að fara mannavillt.

Hitt er svo annað mál hversu útbreiddur þessi skilningur er meðal Pírata almennt, en um það get ég ekki svarað fyrir aðra en mig sjálfan. Þó er mín tilfinning sú að innan Pírata séu allskonar útgáfur af þessum sjónarmiðum. Sumir þeirra skilja þetta, og eru annaðhvort með eða á móti aðild, en aðrir eru "viðræðusinnar" sem skilja þetta ekki og halda að um eitthvað sé að semja en vita ekki betur. Svo eru auðvitað líka til laumu-viðræðu-sinnar, sem vita vel hið rétta en halda samt úti málflutningi um að "kíkja" í pakkan vegna þess að þeir vilja halda einhverju umsóknarferli lifandi.

Þess vegna var svo mikilvægt að það tókst að koma hinu rétta um málið á framfæri á landsfundi 2015, þ.e.a.s. að það er ekki um neitt að velja annað en að undirgangast Lissabon sáttmálann, eða ekki. Þetta skilaði sér í því að þau drög að ályktun sem voru lögð fram breyttust úr því að hljóða efnislega upp á að "klára viðræður og leggja svo aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu", í það að hljóða efnislega upp á að "engar viðræður verði hafnar að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu". Með því var komið til móts við sjónarmið beggja hópa, bæði viðræðusinna sem og þeirra sem skilja að það er ekki um neitt að semja og vilja einfaldlega bara að tekin afstaða, með eða á móti aðild að ESB. Útkoman er sú að samkvæmt þeirri stefnu þá er ekki verði um neinar nýjar viðræður að ræða nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu, og þar sem því verður hafnað í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu þá verður ekkert af neinum frekari viðræðum og þar af leiðandi ekki Evrópusambandsaðild.

Það er miklu sterkara að hafna ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu heldur en að flokkspólitísk ríkisstjórn felli niður viðræður sem næsta stjórn gæti svo mögulega leyft sér að taka upp að nýju ef hún hneigist til aðildar. Með því að hafna aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu væri komið í veg fyrir þetta. Sjálfur er ég andvígur því að Ísland gangi í ESB, og vil gjarnan fá að hafna slíkri aðild alfarið í þjóðaratkvæðagreiðslu, helst sem allra fyrst. Enginn annar flokkur býður upp á stefnu sem felur það í sér að bjóða mér upp á þennan valkost, og þess vegna er þetta besta stefnan í Evrópumálum sem völ er á meðal íslenskra stjórnmálaflokka.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.9.2016 kl. 09:37

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, ég sé ekki að ég sé að misskilja neitt.ÞAÐ ER EKKI MÖGULEIKI Á ÞVÍ AÐ KJÓSA UM HVORT VIÐRÆÐUM SÉ HALDIÐ ÁFRAM EÐA EKKI HELDUR VERÐUR AÐ KJÓSA STRAX UM HVORT MENN VILJI INNLIMAST ESB EÐA EKKI.

Jóhann Elíasson, 21.9.2016 kl. 09:55

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er ekkert sem að leyfir landsmönnum að komast að til að kjósa um ESB, það er þingræði á Íslandi og fulltrúalýðræði.

Ef að fulltrúarnir ákveða að Ísland verði eitt af ESB ríkjunum, þá geta landsmenn ekkert gert.

Aah, hvað ef forsetinn skrifar ekki undir lögin um inngöngu í ESB?

En er það líklegt að forsetinn komi til með að gera það?

Ég held að forsetinn komi til með að skrifa undir, enda er hann ESB sinni.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 21.9.2016 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband