Að kasta stein úr glerhúsi...

...er það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las þetta...var hún ekki á þingi þegar tæra félagshyggjustjórnin var við völd...afhverju gerðu þau þá ekkert...ef þetta er loddaraskapur Framsóknar að koma góðum málum í gegn...þá er loddaraskapur góðyrði.


mbl.is „Þetta er dæmi um loddaraskap“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sig­ríður Ingi­björg mun aldrei styðja þetta frumvarp því það er ekki frá Samfylkingunni og það er hámark loddaraskaps

Grímur (IP-tala skráð) 30.7.2016 kl. 20:48

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Og hver er svo ástæðan fyrir því að Framsóknarflokkurinn vill ekki styðja þetta framkomna frumvarp?

Jósef Smári Ásmundsson, 30.7.2016 kl. 21:25

3 identicon

Tæra félagshyggjustjórnin var minnihlutastjórn með stuðning Framsóknarflokks. Þá, eins og nú, stóð Framsóknarflokkurinn gegn afnámi verðtryggingar. Afnám verðtryggingar er aðeins loforð sem ætlað er til að afla atkvæða, Framsóknarflokkurinn hefur aldrei stutt frumvörp til afnáms verðtryggingar þegar þeim hefur staðið það til boða og aldrei lagt fram frumvarp til afnáms verðtryggingar. Enda Framsóknarflokkurinn sá sem setti á verðtrygginguna.

Davíð12 (IP-tala skráð) 30.7.2016 kl. 21:26

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Við skulum halda því til haga að það var Framsóknarflokkurinn sem kom á þessari verðtryggingu á sínum tíma. Það hlýtur því að vera krafan að sá flokkur taki hana af eða taki undir með öðrum flokkum að afnema hana. Þetta á ekki að vera einhver gulrót til að fá kjósendur í haust. Þessu var lofað í síðustu kosningum og flokkurinn fékk atkvæði út á það loforð þá.

Jósef Smári Ásmundsson, 30.7.2016 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband