Borgarstjóra ber að segja af sér!!

Þetta ástand sem borgarstjórnarmeirihluti hefur valdið, er ekki afsakanlegur, borgarstjóri er höfuð þessar aðgerðar, sem slíkur ber hann að segja af sér.


mbl.is Óbreytt áform um Hörpuhótel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á þá ekki forsætisráðherra að segja af sér vegna viðskiptabanns Rússa sem kostað hefur þjóðfélagið milljarða?

Davíð12 (IP-tala skráð) 22.9.2015 kl. 12:51

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Dabbi það er smá munur á hvort að borgarstjóri eða hvort það er forsætisráðherra að setja viðskiptabann á önnur lönd, þú hlýtur að sjá muninn?

En ef þú sérð ekki muninn á þessu, þá er það í verkahring forsætisráðherra að vera með yfirsjón yfir sinni ríkisstjórn þar með talið utanríkisráðherra og það er í verkahring utanríkisráðherra að sjá um utanríkismál samkvæmt stjórnarskrá, en ekki borgar og bæjarstjórna.

Svo má deila um ef að viðskiptabann á Rússa er í þágu landsins eða ekki, en hitt er vitað mál að viðskiptabann borgarstjórnar á Ísrael er ekki í þágu landsins, enda ekki í verkahring borgarstjórnar að gera slíkt og er jafnvel brot á stjórnarskrárlögum.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.9.2015 kl. 14:41

3 identicon

Ef krafan er afsögn vegna unnins skaða þá er enginn munur á borgarstjóra og forsætisráðherra.

Þessi frétt sem tengt er í bendir til þess að viðskiptabann borgarstjórnar á Ísrael sé einmitt í þágu landsins. Þarna virðist sem þessi tillaga hafi flæmt undan steini fjárfesta sem vilja skipta sér af pólitík og öðru sem kemur hótelrekstri ekkert við. Fjárfesta sem vilja nota fjármagn sitt til þvingana í pólitískri refskák.

Öll sveitarfélög hafa sjálfstæða innkaupastefnu og það er ekkert sem bannar þeim að sniðganga vörur.

Það er hvergi minnst á utanríkisráðherra í Stjórnarskránni eða hvaða sé í hans verkahring. Eins er ekkert í Stjórnarskránni sem takmarkar vald sveitarfélaga til ákvörðunar um innkaup.

Davíð12 (IP-tala skráð) 22.9.2015 kl. 15:57

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Jú það er munur á því, ef það er verið að brjóta stjórnarskrárlög.

Nú er ekki í stjórnarskráni að borgar og bæjarstjórnir landsins fari með milliríkjasamninga heldur er það utanríkisráðherra  í nafni forsetaembættisins.

Ertu að halda því fram að allir milliríkjasamningar sem Ísland hefur gert til þessa séu ólöglegir?

Skoðaðu 13. grein Stjórnarskrárinar.

Nei það er ekki eins einfallt og þú heldur, það er ekki hægt að borgar og bæjarstjórnir séu í einhverjum yfirlýsingum gegn öðrum þjóðum og þá sérstaklega ef það skaðar hagsmuni landsins, nema með samþykki utanríkisráðherra og/eða ríkisstjórnarinnar og/eða Alþingi.

Svona er þetta, ekki bara á Íslandi, ég held eg megi segja flest öllum löndum.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.9.2015 kl. 18:54

5 identicon

Það er ekkert í stjórnarskránni sem bannar þetta. Og innkaupastefna Reykjavíkurborgar er ekki milliríkjasamningur frekar en banani.

Borgar- og bæjarstjórnir, einstaklingar og fyrirtæki um allan heim eru með yfirlýsingar gegn öðrum þjóðum, oftast án aðkomu ríkisstjórna. Og sumar borgir hafa lagt á viðskiptabann. Reykjavíkurborg var ekki að gera neitt sem ekki hefur verið gert áður. Og ekkert sem kemur nálægt því að vera ólöglegt.

Reykjavíkurborg gerir ekki milliríkjasamninga. Enda ekki ríki. En Reykjavíkurborg er frjálst að gera samninga við einstaklinga, fyrirtæki, borgir og ríki svo lengi sem lög banna ekki alla samninga við þann aðila. Það er ekki milliríkjasamningur nema báðir samningsaðilar séu ríki.

Reykjavíkurborg, eins og þeir sem hana byggja, er ekki bundin af utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar óskum hennar og vilja. Og þarf ekki að takas neitt tillit til þess hvað ríkisstjórninni kæmi best. Ríkisstjórnin stjórnar ekki Reykjavíkurborg.

Davíð12 (IP-tala skráð) 22.9.2015 kl. 23:40

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég held að þú ættir að lesa þér til um stjórnunarlög landsins áður en þú berð svona yfirlýsingar fram Dabbi.

En mér dettur ekki í hug að þrasa við þig um eitthvað sem jafnvel borgarstjórinn sjálfur viðurkennir að hann hafi framið afglöp í starfi.

Góðar stundir.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 23.9.2015 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband