Hvar eru "vinir Palestínu" núna????

Maður bara heyrir ekkert í "vinum Palestínu" núna, afhverju kvarta þau ekki yfir þessu viðbjóð, eða styðja þau kannski þessi öfl, má vera.
mbl.is Hamas tók 18 af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Palestínuvinurinn ég fordæmi harkalega aftökur án dóms og laga. Reyndar fordæmi ég almenn dauðarefsingar.

Það breyrir því ekki að ég styð heilshugar frelsidbaráttu Palestínumanna og baráttu þeirra fyrir því að fá land sitt aftur sem rænt hefur verið af þeim af hálfu.

En þó ég fordæmi dauðadóma þá má þó benda á að slíkt er mjög algeng refsing í löndum í stríði fyrir þau föðurlandssvik að aðstoða óvinin. En hver sem refsingin er þá eiga allir rétt á alvöru réttarhöldum þar sem gögn máls eru metin og út frá því metið hvort það sé hafið yfir skynsamlegan vafa að viðkomandi sé sekur áður en refsingu er beitt.

En hver sem refsirammin er þá er það svo alvarlegur glæpur að aðstoða Ísraela að slíkt verðskuldar hörðustu refsingu sem refsirammi þess lands sem á í hlut býður upp á. Með slíku verða menn meðsekir í þeim hrottalegu stríðsglæpum sem Ísraelar hafa í gegnum tíðina framið margítrekað og engin vafi á að þeir muni halda slíku áfram ef alþjóðasamfélagið stoppar þá ekki af.

En aftökur án dóms og laga eiga aldrei rétt á sér hvorki með þeim hætti sem Hamast liðar hafa þarna gerst sekir um né heldur þær aftökur saklauss fólks sem Ísraelar hafa stundað með flugskeytárásum til að hefna fyrir það sem einhverjir aðrir Palestínumen hafa gert á hlut Ísraela.

Sigurður M Grétarsson, 22.8.2014 kl. 20:53

2 identicon

Sorglegt að sjá menn réttlæta þetta.

Eru menn ekki að fatta að Hamas eru ekkert annað en morðhundasamtök, sem er skítsama um allt og alla nema sjálfa sig.

Hugsa sér ef þeir myrða aðila sem mögulega hefðu gert eitthvað til að hjálpa Ísraelum, þá eru þeir myrtir. En þeir hinir sömu gera allt til að gera ástandið þarna verra, enda græða þeir mest á hörmungum(hvar sem þær eru).

Alveg með ólíkindum að vestrænn upplýst fólk skuli falla fyrir þessum málstað.
  ..



Haraldur G. (IP-tala skráð) 22.8.2014 kl. 21:16

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ríkisstórn Ísraela eru líka morðhundasamtök sem er skítsama um allt nema sjálfa sig. Og samanborið við þá eru Hamas liðar eins og sunnudagaskóladrengir.

Hvar sérð þú réttlætingu í mínum skrifum? Ég fordæmi í þeim bæði aftökur án dóms og laga og einnig dauðarefsingar almennt. En vissuleg bendi ég á að föðurlandssvik eins og það að aðstoða óvinaríki á stríðstímum sé allst staðar tekið á með hörðustu refsingum sem refsirammi viðkomandi ríkja býður upp á. Það er ekki sérstaða Hamas.

Ert þú virkilega að gera lítið úr þeim hræðilega glæp að aðstoða Ísraela við voðaverk sín gegn Palestínumönnum?

Sigurður M Grétarsson, 22.8.2014 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband