Það eina rétta..

Flott, þetta er það eina rétta í stöðunni, þessi deila hefur þegar skaðað ferðamannaiðnaðinn, og nokkuð ljóst að deiluaðilar hafa ekki getu né þroska til þess að útkljá þessi mál, vel gert Hanna Birna.
mbl.is Lög verða sett á flugmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algj0rlega fáránlegt. Það er ekki eins og landið lokist. Eru ekki ein 18 flugfélög að fljúga hingað? Varla þó með tómar vélar? Icelandair hefur leikið þennan leik áður. Þeir hljóta að eiga eitthvað inni hjá Sjálfstæðisflokknum. Hér í gamla daga þegar lög voru sett á flugmenn, þá var Icelandair eitt um markaðinn. En svo er ekki í dag. Grunnlaun flugmanna eru um 420 þúsund á mánuði og þeir tilheyra þeirri fámennu stétt sem bera áþreifanlega ábyrgð. Lög ættu aldrei að fást gegn verkfallsrétti, nema viðsemjandi geti sýnt fram á að hafa boðið eitthvað umfram verðbólgu áður. Hvað með flugfreyjur, flugvallarstarfsmenn og hvað með kennara? Á að setja lög á allann pakkann?

G.Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2014 kl. 15:30

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Það getur aldrei talist eðlilegt að ríkisstjórn grípi inní kjaraviðræður með afarkostum.

Það sem að flugmenn hafa farið frammá er lítið annað en almenningur, þ.e.a.s. að almenningur fái svipaðar eða sömu hækkanir og stjórnir fyrirtækjanna sem að almenningur á svo að meginþorra aftur via lífeyrissjóðina.

Óskar Guðmundsson, 14.5.2014 kl. 16:04

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sem sagt...þegar næsta loðnuvertíð brestur á..þá á landvinnslufólk bara skella sér í verkfall...það er það sem þið eruð að tala um...hvernig haldið þið að ástandið verði hérna ef þetta yrði svona eins og þið segið..algert efnahagslegt hrun.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 14.5.2014 kl. 17:41

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þessi lög um verkfallsrétt,sem voru sett 1938,hlýtur að þurfa að endurskoða. Í þá daga og langt fram á tuttugust öldina voru það nær eingöngu lægstlaunuðu stéttirnar sem nýttu verkfallsréttinn,þótt mættu trauðla við því,fyrr en forystan hafði byggt upp verkfallssjóði. Mér finnst umræða um þennan rétt þurfi að eiga sér stað,þar sem fleiri og fleiri hálaunamanneskjur skaða aðrar stéttir og þjóðfélagið í heild með aðgerðum sínum,sem eru eins og núna eingöngu skærur.

Helga Kristjánsdóttir, 15.5.2014 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband