Draga þessa umsókn til baka..

Það ber að draga þessa umsókn til baka undir eins...fyrrverandi ríkisstjórn hafð ekkert umboð til þess að sækja um aðild fyrir það fyrsta, og þessi hefur það ekki heldur, enda tel ég að við klárum að draga þessa umsókn til baka áður en langt um líður...við höfum um margt annað að hugsa en þessa vitleysu..þetta ESB rugl.

 


mbl.is Afstaðan til ESB alltaf verið skýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrrverandi ríkisstjórn hafð fullt umboð Alþingis til þess að sækja um aðild en þessa skortir það og getur því ekki dregið umsóknina til baka.

Espolin (IP-tala skráð) 5.4.2014 kl. 16:52

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér Ægir Óskar.

Espolin naumur meirihluti var það sem fyrrverandi Rílisstjórn hafði frá Alþingi.

Þessi Ríkisstjórn hefur fullt umboð kjósenda sinna til að draga þessa umsókn tafarlaust til baka. Það voru um 120,000 manns sem kusu Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn samanlagt í síðustu Alþingiskosningum.

Að meirihluti kjósi þá sem hafa það eindregið á stefnuskrá sinni að vilja ekki í ESB segir allt sem segja þarf um það.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 5.4.2014 kl. 17:06

3 identicon

Umboð Alþingis er það sem þurfti og fékkst til umsóknar og umboð Alþingis er það sem þarf til að draga umsókn til baka. Alþingi hefur ekki veitt ríkisstjórninni umboð til að draga þessa umsókn Alþingis til baka fyrir hönd Alþingis. Alþingi eitt ræður í þessu máli og ríkisstjórnin er valdlaus án umboðs Alþingis.

Hvernig sem fólk túlkar niðurstöður síðustu kosninga, og hverjar sem óskir sjálfstæðisflokks og framsóknarflokks eru, þá hefur ríkisstjórnin ekki það lögformlega umboð sem krafist er. Eitthvað táknrænt umboð kjósenda og landsfunda er ekki fullnægjandi.

Espolin (IP-tala skráð) 5.4.2014 kl. 19:03

4 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það er rangt hjá þér Espolin.

Þegar eitthvað sem snertir fullveldi þjóðarinnar þá ber að spyrja þjóðina fyrst áður en anað er útí eitthvað sem enginn meirihluti er fyrir. Það er af þessari sömu ástæðu sem núverandi ríkisstjórn ber að draga til baka ólöglega umsókn fyrri ríkisstjórnar...

Ólafur Björn Ólafsson, 5.4.2014 kl. 19:43

5 identicon

Umsókn snertir ekki fullveldið, innganga gerir það. Á þessu er mikill munur, þó margir sjái hann ekki. Alþingi ákvað að senda inn umsókn þannig að hún er fullkomlega lögleg. Núverandi ríkisstjórn getur ekki dregið til baka umsókn Alþingis án umboðs frá Alþingi.

Espolin (IP-tala skráð) 5.4.2014 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband