Ekki rétt Bjarni....

Fjármálaráðherra vonandi áttar sig á því að þetta lið sem mætt hafa niður á Austurvöll, og skrifað undir þessi blöð, ná ekki einu sinni fylgi kommúnista ef maður mælir frá síðustu kosningum...nei enga þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og einmitt sem síðasta stjórn vildi ekki, þegar Sjálfstæðismenn vildu láta þjóðina kjósa, um það hvort við vildum fara í þetta ferli, þá er enginn ástæða núna að setja 250.000.000 í þennan gjörning.

Klárum þessa þingsályktun, og drögum þetta til baka umsvifarlaust, ráðum í Seðlabankann, mann sem vill lækka vexti, og styrkjum krónuna til muna, svo höggi sé hægt að koma á vogunarsjóðina. 


mbl.is „Ákallið hærra en ég átti von á“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þú áttar þig hins vegar ekki á því að 50000 eru búnir að skrifa undir áskorun um þjóðaratkvæði og 70% hafa mælst í skoðanakönnunum sem eru meðmæltir.Er ekki rétt að láta fólk njóta vafans og fá að ráða því hvort hvort viðræðunum verði slitið eða ekki.Hvað er orðið af lýðræðinu í landinu?

Jósef Smári Ásmundsson, 14.3.2014 kl. 17:46

2 identicon

Lýðræði hræðir einangrunarsinna. Þjóðinni er ekki treystandi til að kjósa "rétt". Þjóðin má aldrei sjá samninginn og kjósa um hann. Þjóðin er böl og baggi nei sinna.

Hábeinn (IP-tala skráð) 14.3.2014 kl. 17:53

3 identicon

 ..Lyðræði er að hafa sitjandi stjórnvöld ..ekki æpandi fólk á Austurvelli ...Það heitir múgæsingur !!! það vita allir stjórnarliðar ..nema þá BB ef hann er að efast ? 

rhansen (IP-tala skráð) 14.3.2014 kl. 20:18

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nú verður málið tekið fyrir í utanríkismálanefnd og þá verður líklega ekki mikið um þetta botnlausa lýðskrum að ræða, þar sem enginn sér til.

Í þeirri umræðu vænti ég að fram komi það sem ekki má nefna í málinu og er ástæða allra uppþotanna, en það er fyrst spurningin um það hvað það var í skiæyrðum sambandsins fyrir opnun sjávarutvegskaflann, sem sigldi viðræðunum í strand.

Í öðru og máske mikilvægara, er að sambandið opinberi rýniskýrslu um sjávarútveginn, sem það hefur neitað að láta af hendi.

Þegar þetta tvennt er komið upp á yfirborðið, þá duga engin rök gegn því að draga þetta til baka.

Samfylkingin mun þó láta öllum illum æátum til að koma í veg fyrir þessa opinberun og draga hvern tittlingaskítinn upp á fætur öðrum, sem ekki tengist málinú, til að draga athygli fólks frá þessu. Þar njóta þau dyggrar aðstoðar þriggja stærstu fjölmiðla landsins.

Það verður fjör að fylgjast með.

Bjarni er bara að benda á fáránleka málsins og segja að ef til kosninga komi þá geti þær ekki snúist um annað en þetta frumvarp. Þ.e. Hvort umsóknin liggur áfram í formalíni eða verði dregin til baka. Um annað er tómt mál um að tala. Það blasir hreinlega við öllum sem hafa eitthvað á milli eyrnanna.

Raunar hefur fólk ekki hugmynd um hverskonar kosningar það er að heimta né til hvers. Umræðunni hefur verið snúið upp í tilfinningarök um rétt til þjóðaratkvæða svona almennt, en ekki hið raunverulega málefni.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.3.2014 kl. 21:16

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hábeinn hér er einmitt dæmi um þessar glamrandi tóku kúskeljar og frasabergmál.

Það er einmitt markmið ríkistjornarinnar að upplýsa um stöðu mála og leggja þannig þetta mál til hvílu. Það er reynt að kæfa með yfirgnæfandi lýðskrumi kratanna.

Þetta er allt að skýrast. Ef fólk kýs um þetta frumvarp á endanum, þá kýs það umsóknina út í hafsauga að gefnu því að það verði upplýst um stöðu mála.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.3.2014 kl. 21:22

6 Smámynd: Hörður Einarsson

Kjósum á móti bara til að vera á móti, því ef við erum ekki á móti þá, þýðir ekki að mótmæla. "FÚLL Á MÓTI"

Hörður Einarsson, 14.3.2014 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband